Leikskólinn Seljaborg - kennslustofur, hönnun, smíði og lóðarfrágangur
Hvað verður gert?
Framkvæmd felur í sér hönnun, smíði, flutning og uppsetningu tveggja kennslustofa ásamt tengibyggingu við leiksólann Seljaborg. Verkefnið nær einnig til hönnunar og framkvæmdar jarðvinnu, gerðar undirstaða og lagningar allra lagna í grunni. Að auki felur verkið í sér lóðarvinnu, lagningu og tengingu stofnlagna við viðeigandi kerfi samkvæmt fyrirliggjandi hönnun.
Stofurnar verða byggðar utan lóðar. Á meðan á byggingu þeirra stendur á að grafa lagnaskurð frá núverandi byggingu og að nýjum húsum. Stefnt er að því að ljúka þeim hluta framkvæmdarinnar áður en komið verður með húsin. Frágangur lóðar er einnig hluti af verkinu. Endurnýja þarf þann hluta lóðarinnar þar sem nýjar stofur koma og ganga frá yfirborði.
Í öðru húsinu er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir nemendur, fatahólfum, snyrtingu, leikrýmum og listasmiðju. Í tengibyggingu verður matstofa sem einnig má nýta sem fjölnota rými. Í hinu húsinu er gert ráð fyrir starfsmannaaðstöðu fyrir starfsfólk leikskólans með kaffistofu, undirbúningsrými og fundaaðstöðu.
Á meðan á byggingu þeirra stendur á að grafa lagnaskurð frá núverandi byggingu og að nýjum húsum. Stefnt er að því að ljúka þeim hluta framkvæmdarinnar áður en komið verður með húsin. Frágangur lóðar er einnig hluti af verkinu. Endurnýja þarf þann hluta lóðarinnar þar sem nýjar stofur koma og ganga frá yfirborði.
Hvernig gengur?
Febrúar 2026
Bygging á nýjum stofum eru á áætlun en stofurnar eru smíðaðar á verkstað verktaka og verða svo fluttar á lóð leikskólans.
Vinna við stoðvegg og lagnafrágang á lóð er í gangi.
Febrúar 2026
Verið er að undirbúa byggingu á stoðvegg á lóðinni þar sem að nýjar stofur munu koma. Einnig er byrjað grafa lagnaskurð meðfram lóð þar sem þær munu koma. Mjög fljótlega verður byrjað að grafa fyrir lagnaskurði sem mun vera meðfram Tunguseli.
Janúar 2026
Bygging húsanna á verkstað verktaka á Selfossi er langt komin. Vinnu við grunn á lóð leikskólans er lokið. Framundan er uppsteypa á stoðveggjum og gerð lagnaskurða innan og utan lóðar.
Janúar 2026
Lokið er færslu á nýju gönguhliði inn á lóð leikskólans. Verður það nýtt meðan á framkvæmdatíma stendur. Verið er að undirbúa framkvæmdir á endurnýjun á lögnum norðanmegin við núverandi hús. Nánari upplýsingar um gönguleiðir meðfram húsinu verða settar inn á síðuna þegar sú vinna fer af stað.
Unnið er að jarðvinnu til að koma fyrir sökklum og staðsetningu í nýjum stofum. Á verkstað á Selfossi er unnið að smíði á nýju stofunum.
Verkið er á áætlun.
Desember 2025
Unnið er að jarðvinnu til að koma fyrir sökklum og staðsetningu í nýjum stofum eftir að verktaki lauk við að girða af vinnusvæði. Nauðsynlegt var að girða af núverandi bílastæði til að skapa rými fyrir aðföng og athafnir.
Á meðan framkvæmdum stendur munu foreldrar nýta inngang við Öldusel. Sett verður upp nýtt inngangshlið frá stíg sem er meðfram skólalóðinni.
Nýju húsin og tengibygging eru smíðuð á verkstað verktakans til að takmarka rask á framkvæmdatíma. Ráðgert er að koma með húsin í janúar. Gera má ráð fyrir vinnu verktakans á svæðinu fram í lok febrúar.
Verkið er á áætlun.
Nóvember 2025
Verið er að smíða stofurnar á verkstað verktakans. Búið er að reisa burðargrindur húsanna, verið er að loka útveggjum og stefnt að því að loka gólfum á næstu vikum.
Verktakinn mun byrja að girða af vinnusvæðið í byrjun næstu viku. Í framhaldinu verður farið að grafa fyrir sökklum á nýjum stofum.
Aðgangur að leikskólanum er annar á meðan framkvæmdum stendur. Leiðbeiningar sendar til foreldra.
Verkið er á áætlun.
Maí 2025
Alls bárust fjögur tilboð í framkvæmdir á færanlegum stofum við Seljaborg. Samþykkt var að ganga að tilboði Eðalbygginga ehf.