Leikskólinn Maríuborg – kennslustofur, hönnun, smíði og lóðarfrágangur

Uppsetning tveggja færanlegra kennslustofa við leikskólann Maríuborg.
2025 - 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Yfirlitsmyndir

Hvað verður gert?

Framkvæmd felur í sér hönnun, smíði, flutning og uppsetningu tveggja kennslustofa ásamt tengibyggingu við leikskólann Maríuborg. Verkefnið nær einnig til hönnunar og framkvæmdar jarðvinnu, gerðar undirstaða og lagningar allra lagna í grunni. Að auki felur verkið í sér lóðarvinnu, lagningu og tengingu stofnlagna við viðeigandi kerfi samkvæmt fyrirliggjandi hönnun.


Kennslustofurnar eru hver um sig 14,9m x 6,4m eða um 96m2 á einni hæð ásamt tengibyggingu, um 40m2. Samtals er því nýja húsnæðið um 232m2 að stærð. Kennslustofurnar skulu vera byggðar úr timbri. Hverja kennslustofu á að vera hægt að flytja í heilu lagi, setja niður á lóð leikskólans og tengja saman með tengibyggingu.

 

Verkið felur í sér eftirfarandi verkþætti: 
• Hönnun og smíði tveggja kennslustofa og tengibyggingar við leikskólann, þar með talið jarðvinnu og gerð undirstaða fyrir kennslustofurnar (alverktaka). 
• Lóðarfrágang á tengdum svæðum samkvæmt fyrirliggjandi hönnun. 
• Lagningu stofnlagna fyrir kennslustofur ásamt tengingu við viðeigandi kerfi samkvæmt fyrirliggjandi hönnun. 

Áætlað er að tilkoma kennslustofanna geti fjölgað börnum við leikskólann um 22.

Hvernig gengur?

Mars 2026

Gengið að tilboði Terra eininga. 

Febrúar 2026

Tilboð vegna útboðs í hönnun, smíði og lóðafrágangs hafa verið opnuð

Hver koma að verkinu?

Reykjavíkurborg

Verkkaupi - Skrifstofa framkvæmda og viðhalds fyrir hönd Eignaskrifstofu og Skóla-og frístundasviðs

VSÓ ráðgjöf

Eftirlit

Terra einingar

Verktaki

Síðast uppfært 13.04.2026