Leikskólinn Maríuborg – kennslustofur, hönnun, smíði og lóðarfrágangur

Uppsetning tveggja færanlegra kennslustofa við leikskólann Maríuborg.
2025-2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Yfirlitsmyndir

Hvað verður gert?

Framkvæmd felur í sér hönnun, smíði, flutning og uppsetningu tveggja kennslustofa ásamt tengibyggingu við leikskólann Maríuborg. Verkefnið nær einnig til hönnunar og framkvæmdar jarðvinnu, gerðar undirstaða og lagningar allra lagna í grunni. Að auki felur verkið í sér lóðarvinnu, lagningu og tengingu stofnlagna við viðeigandi kerfi samkvæmt fyrirliggjandi hönnun.


Kennslustofurnar eru hver um sig 14,9m x 6,4m eða um 96m2 á einni hæð ásamt tengibyggingu, um 40m2. Samtals er því nýja húsnæðið um 232m2 að stærð. Kennslustofurnar skulu vera byggðar úr timbri. Hverja kennslustofu á að vera hægt að flytja í heilu lagi, setja niður á lóð leikskólans og tengja saman með tengibyggingu.

 

Verkið felur í sér eftirfarandi verkþætti: 
• Hönnun og smíði tveggja kennslustofa og tengibyggingar við leikskólann, þar með talið jarðvinnu og gerð undirstaða fyrir kennslustofurnar (alverktaka). 
• Lóðarfrágang á tengdum svæðum samkvæmt fyrirliggjandi hönnun. 
• Lagningu stofnlagna fyrir kennslustofur ásamt tengingu við viðeigandi kerfi samkvæmt fyrirliggjandi hönnun. 

Hvernig gengur?

Framkvæmdartími er:

árið 2026

Hver koma að verkinu?

Reykjavíkurborg

Verkkaupi - Skrifstofa framkvæmda og viðhalds fyrir hönd Eignaskrifstofu og Skóla-og frístundasviðs

Eftirlit

Verktaki

Last updated 05.03.2026