Leikskólinn Jörfi - kennslustofur, hönnun, smíði og lóðarfrágangur

Uppsetning tveggja færanlegra kennslustofa við leikskólann Jörfa.
2025 - 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndir

Hvað verður gert?

Verkið felur í sér hönnun, smíði, flutning og uppsetningu tveggja kennslustofa ásamt tengibyggingu. Verkefnið nær einnig til hönnunar og framkvæmdar jarðvinnu, gerðar undirstaða og lagningar allra lagna í grunni. Að auki felur verkið í sér lóðarvinnu, lagningu og tengingu stofnlagna við viðeigandi kerfi samkvæmt fyrirliggjandi hönnun. 

Kennslustofurnar eru hver um sig 14,9m x 6,4m eða um 96m2 á einni hæð ásamt tengibyggingu, um 32m2, samtals er því nýja húsnæðið um 224m2 að stærð. Kennslustofurnar skulu vera byggðar úr timbri. Hverja kennslustofu á að vera hægt að flytja í heilu lagi, setja niður á lóð leikskólans og tengja saman með tengibyggingu. 

Verkið felur í sér eftirfarandi verkþætti:

  • Hönnun og smíði tveggja kennslustofa og tengibyggingar við leikskólann, þar með talið jarðvinnu og gerð undirstaða fyrir kennslustofurnar (alverktaka)
  • Lóðarfrágang á tengdum svæðum samkvæmt fyrirliggjandi hönnun
  • Lagningu stofnlagna fyrir kennslustofur ásamt tengingu við viðeigandi kerfi samkvæmt fyrirliggjandi hönnun.

Hvernig gengur?

Mars 2026

Tilboð opnuð í útboði framkvæmdarinnar.

Síðast uppfært 30.03.2026