Leikskólinn Jörfi - kennslustofur, hönnun, smíði og lóðarfrágangur

Uppsetning tveggja færanlegra kennslustofa við leikskólann Jörfa.
2025 - 2027
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndir

Hvað verður gert?

Verkið felur í sér hönnun, smíði, flutning og uppsetningu tveggja kennslustofa ásamt tengibyggingu. Verkefnið nær einnig til hönnunar og framkvæmdar jarðvinnu, gerðar undirstaða og lagningar allra lagna í grunni. Að auki felur verkið í sér lóðarvinnu, lagningu og tengingu stofnlagna við viðeigandi kerfi samkvæmt fyrirliggjandi hönnun. Færanlegu stofurnar koma í stað húss sem þegar stendur á bílastæði leikkólans (K-89B).

Kennslustofurnar eru hver um sig 14,9m x 6,4m eða um 96m2 á einni hæð ásamt tengibyggingu, um 32m2, samtals er því nýja húsnæðið um 224m2 að stærð. Kennslustofurnar eiga að vera byggðar úr timbri. Hverja kennslustofu á að vera hægt að flytja í heilu lagi, setja niður á lóð leikskólans og tengja saman með tengibyggingu. 

Verkið felur í sér eftirfarandi verkþætti:

  • Hönnun og smíði tveggja kennslustofa og tengibyggingar við leikskólann, þar með talið jarðvinnu og gerð undirstaða fyrir kennslustofurnar (alverktaka)
  • Lóðarfrágang á tengdum svæðum samkvæmt fyrirliggjandi hönnun
  • Lagningu stofnlagna fyrir kennslustofur ásamt tengingu við viðeigandi kerfi samkvæmt fyrirliggjandi hönnun.

 

Áætlað er að tilkoma kennslustofanna geti fjölgað börnum við leikskólann um 20.

Hvernig gengur?

September 2026

Unnið er að smíði stofanna erlendis og þær væntanlegar til landsins í vetur. Áætluð verklok eru í apríl 2027.

Ágúst 2026

Byggingaleyfi samþykkt af af byggingarfulltrúa.

Júlí 2026

Unnið að lokayfirferð aðaluppdrátta. Fyrirhugað er að hefja jarðvinnu á verkstað í ágúst en húsin eru smíðuð erlendis og ráðgert að þau komi til landsins síðar um haustið.

Hver koma að verkinu?

Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu Reykjavíkurborgar

Verkkaupi

Terra einingar

Verktaki

VSÓ ráðgjöf

Eftirlit

Norconsult

Byggingarstjórn

Efla

Verkefnisstjórn

Noland Arkitektar

Arkitektúr
Last updated 11.09.2026