Leikskólinn Hulduheimar - viðbygging

Framkvæmdin felur í sér 265 fermetra viðbyggingu við leikskólann Hulduheima ásamt lóðafrágangi.
2025 - 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Ljósmyndir

Hvað verður gert?

Verkið felst í að steypa upp, einangra og klæða að utan alls 265m2 viðbyggingu við leikskólann Hulduheima. Lögð er áhersla á að láta nýja viðbyggingu falla vel að núverandi byggingu þannig þær myndi eina heild. Framkvæmdaáætlun miðast að því að full starfsemi verði áfram í núverandi húsnæði leikskólans á meðan framkvæmdir við viðbyggingu standa yfir. 

Verkið felst í jarðvinnu, lagningu botnlagna, uppsteypu, gluggaísetningu og fullnaðarfrágangi að utan sem innan nýrrar leikskólabyggingar sem byggð verður við núverandi leikskólabyggingu Hulduheima. Ásamt því er uppsetning allra tækni – og lagnakerfa s.s. loftræsikerfis, vatns- , og raflagna. Einnig eru lóðarframkvæmdir hluti af verkinu.

Í nýrri viðbyggingu er gert ráð fyrir 33 börnum en áætlað er að viðbyggingin sé tilbúin í apríl 2026. Í framhaldi af því tekur við lóðarfrágangur.

Hvernig gengur?

Apríl 2026

Frágangi innanhúss er lokið. Uppsetning innréttinga er frágengin. Verið er að þrífa húsnæðið. Húsgögn og öðrum  búnaði komið fyrir á næstu vikum.

Öryggisúttekt verður í lok apríl.  

Frágangur á lóð hefst í apríl og gert er ráð fyrir að hann verði fram í maí.

Mars 2026

Frágangi innanhúss og utanhúss er að mestu lokið. Uppsetning innréttinga og aðgangsstýringakerfa verður í lok mars. Eftir eru þrif á húsnæðinu. Því næst verða húsgögn og öðrum  búnaði komið fyrir. Frágangur á lóð hefst í apríl og gert er ráð fyrir að hann verði fram í maí. 

Febrúar 2026

Frágangur innanhúss er langt kominn. Verið er að ljúka við uppsetningu á kerfislofti auk þess sem verið að mála og leggja gólfefni. Þá er verið að hefjast handa við að setja upp innihurðir.

 

Hver koma að verkinu?

USK umhverfis - og skipulagssvið

Skrifstofa - framkvæmda og viðhalds
Verkefnastjóri - nýbyggingar

VA - arkitektar

Umsjón og eftirlit

JTV umsjón og eftirlit

Verktaki

BÓ Smiðir ehf.

Landslagshönnun

Lagnahönnun

Burðarþolshönnun

Raflagnahönnun

Last updated 08.04.2026