Leikskólinn Hólaborg – kennslustofur, hönnun, smíði og lóðarfrágangur

Uppsetning þriggja færanlegra kennslustofa við leikskólann Hólaborg.
2025 - 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndir

Hvað verður gert?

Framkvæmd felur í sér hönnun, smíði og flutning þriggja kennslustofa. Kennslustofunar eru á einni hæð, hver um sig 14,9m x 6,4m að stærð, eða um 96m². Auk þess verða reistar milli húsanna tvær tengibyggingar, annars vegar um 40m² og hins vegar um 30m².

Heildarstærð nýs húsnæðis verður því um 360m². Kennslustofurnar skulu byggðar úr timbri og uppfylla viðeigandi byggingarkröfur og reglugerðir. Verkið nær einnig til lóðarvinnu í samræmi við fyrirliggjandi hönnun.

Samhliða verða jarðvatnslagnir lagfærðar á núverandi húsnæði leikskólans. 

Hvernig gengur?

Janúar 2026

Gengið að tilboði Terra eininga. Áætluð verklok eru desember 2026.

Nóvember 2025

Útboðsferli hefst.

Hver koma að verkinu?

Reykjavíkurborg

Verkkaupi - Skrifstofa framkvæmda og viðhalds fyrir hönd Eignaskrifstofu og Skóla-og frístundasviðs

Eftirlit framkvæmdar

Hnit

Verktaki

Terra einingar
Síðast uppfært 13.03.2026