Leikskólinn Funaborg - framkvæmdir
Hvað verður gert?
Samhliða viðhaldsframkvæmdum á leikskólanum Funaborg var áætlað að reisa leikskólanum viðbyggingu. Nú hefur viðbyggingaráformum verið slegið á frest um óákveðinn tíma en haldið áfram með áform um viðhald og endurbætur.
Gólfdúkar verða endurnýjaðir samhliða fráhreinsun á rakaskemmdu byggingarefni og slípun gólfa. Unnið verður að viðhaldi á þaki hússins og útsogsblásurum bætt við. Þá verða gerðar úrbætur á hljóðvist í leikskólanum og allt málað.
Áætlað er að framkvæmdir hefjist í október 2026 og að þeim ljúki í febrúar 2027. Starfsemi leikskólans flyst á verktíma í Húsaskóla þar sem komið hefur verið upp aðstöðu undir leikskólastarf.
Hvernig gengur?
Júní 2026
Viðbyggingaráformum slegið á frest um óákveðinn tíma. Verið er að undirbúa viðhalds- og endurbótaframkvæmdir sem áætlað eru að hefjist í október 2026.
Febrúar 2026
Verkefnið er í vinnslu innan Reykjavíkurborgar
Mars 2025
Samþykkt í borgarráði að hefja útboðsferli á framkvæmdum. Ráðgert að Funaborg færi starfsemi sína í Húsaskóla á meðan verktíma stendur.