Leikskólinn Funaborg - viðbygging
Hvað verður gert?
Reist verður viðbygging við leikskólann Funaborg alls 951m2 að stærð.
Einnig skal bæta aðkomu að núverandi húsnæði að norðanverðu ásamt því að endurnýja bæði gróður og leiktæki á lóðinni.
Viðbyggingin mun standa á staðsteyptum undirstöðum og skerveggjum á 1. hæð ásamt staðsteyptri plötu yfir fyrstu hæð. Útveggir eru úr timburgrind að stærstum hluta.
Útveggir eru klæddir ýmist með timburklæðningu og báruklæðningu.
Endurbætur á núverandi byggingu felast m.a. í að setja upp vatnsúðarakerfi, vélræna loftræsingu og bæta aðgengi fyrir alla.
Hvernig gengur?
Júlí 2025
Verið er að klára vinna við útboðsgögn sem fara í auglýsingu fljótlega.