Hólabrekkuskóli - Endurgerð húsnæðis
Framkvæmd








Hvað verður gert?
Fyrsta skref - Hús 4
Frumhönnun og þarfagreining leiddi í ljós að fara þurfti í frekari breytingar á húsi 4 en reiknað var með í upphafi, bæði að utan og innan. Af þeim sökum hefur verkefnið dregist, og er nú reiknað með að framkvæmdum ljúki í húsi 4 á vormánuðum 2026.
Helstu endurbætur eru þessar:
Bætt aðgengi að húsinu (meðal annars sett upp ný lyfta). Brunavarnir uppfærðar.
Kennslustofur stækkaðar og bætt við vinnurýmum kennara.
Hljóðvist stórbætt.
Húsið verður einangrað og klætt að utan.
Þakfrágangur uppfærður.
Gluggakerfi endurnýjað í heild sinni.
Loftræsting endurgerð.
Annað skref - Hús 3
Hús 3 verður uppfært með tilliti til aðgengis, brunavarna, hljóðvistar og loftræstikerfis. Skólaeldhús verði uppfært, matsalir kennara og nemenda verða endurgerðir, húsið klætt að utan og nýtt þak sett á húsið. Innra skipulagi verður breytt, kennslustofum fjölgað, brunavarnir bættar, hljóðvist og ljósvist betrumbætt, lagnir endurnýjaðar, nýtt þak og byggt yfir inngarðinn sem nýtist sem hluti af matsal.
Þriðja skref - Hús 1 og 2
Enn er verið að skoða hversu langt verður gengið með endurbætur á húsum 1 og 2.
Hvernig gengur?
20 mars 2025
Samið verður við verktakann Tindhagur efh sem bauð lægst í endurgerð Hólabrekkuskóla hús 4. Undirbúningur er hafinn og mun verktakinn koma sér fyrir á framkvæmdasvæðinu fljótlega.
Mars 2025
Útboð 16039, fyrir endurgerð á húsi 4, var opnað í febrúar. Sjö verktakar buðu í verkið og niðurstöður og samningar ættu að liggja fyrir í mars.
Til að nýta tímann fram að uppbyggingu og minnka áhættu á ófyrirséðum verkum var ákveðið að hreinsa bygginguna betur að innan í desember.
Útboðsgögn fyrir hús 3 eru langt komin og er áætlað að þau verði tilbúin í maí 2025.
Nóv 2024
Hönnunar- og útboðsgögn fyrir hús 4 eru tilbúin. Reiknað er með að auglýsa útboð fyrir jól 2024 og opnun verði í upphafi árs 2025.
Aðalhönnun fyrir hús 1-3 er nánast tilbúin og sérhönnun (tæknihönnun) fyrir hús 3 er hafin.
Júlí 2024
Heildstæð hönnun á öllum 4 húsum Hólabrekkuskóla - þarfagreining og skilgreining húsnæðis er á lokametrum.
Deili-og sérhönnun á húsi 4 er í fullum gangi og er reiknað með að útboð á framkvæmdum í húsi 4 verði á vetrarmánuðum.
Frumhönnun á húsum 1-3 er langt komin og deili- og sérhönnun mun hefjast að loknu sumri.
Hver koma að verkinu?
VSÓ framkvæmdaráðgjöf og verkstýring
Atli Örn Hafsteinsson atli@vso.is
Verksýn -Byggingastjórn og framkvæmdaeftirlit
Einar Hannesson einar@verksyn.is