Hólabrekkuskóli - endurgerð

Unnið er að hönnun og við framkvæmd á endurgerð Hólabrekkuskóla auk þess sem settar verða niður færanlegar kennslustofur á lóð skólans.
2023 - 2027
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndir

Hvað verður gert?

Endurgerðarframkvæmdum við Hólabrekkuskóla er áfangaskipt í þrennt. Svo skapa megi hvorutveggja framkvæmdum og skólastarfi svigrúm verða settar upp 12 færanlegar kennslustofur á lóð skólans.

Fyrsti áfangi

Fyrsti áfangi framkvæmda tekur til syðsta húss Hólabrekkuskóla (hús 4). Frumhönnun og þarfagreining leiddi í ljós að fara þurfti í frekari breytingar á húsi 4 en reiknað var með í upphafi, bæði að utan og innan. Áætlað er að framkvæmdum ljúki í húsi 4 á vormánuðum 2026.

Helstu endurbætur eru þessar:  

  • Bætt aðgengi að húsinu (meðal annars sett upp ný lyfta)
  • Brunavarnir uppfærðar
  • Kennslustofur stækkaðar og bætt við vinnurýmum kennara
  • Hljóðvist stórbætt
  • Húsið verður einangrað og klætt að utan
  • Þakfrágangur uppfærður
  • Gluggakerfi endurnýjað í heild sinni
  • Loftræsting endurgerð

Annar áfangi

Annar áfangi framkvæmda tekur til næst-syðsta húss Hólabrekkuskóla (hús 3). Húsið verður uppfært með tilliti til aðgengis, brunavarna, hljóðvistar og loftræstikerfis. Skólaeldhús verður uppfært, matsalir kennara og nemenda verða endurgerðir, húsið klætt að utan og þak endurnýjað. 

Innra skipulagi verður breytt, kennslustofum fjölgað, brunavarnir bættar, hljóðvist og ljósvist betrumbætt, lagnir endurnýjaðar og byggt yfir inngarðinn sem áætlað er að nýtist sem hluti af matsal.

Þriðji áfangi

Þriðji áfangi framkvæmda tekur til nyrstu húsa Hólabrekkuskóla (hús 1 og 2). Nánar verður greint frá framkvæmdaáformum þeirra húsa eftir því sem hönnun vindur fram. 

Hvernig gengur?

Mars 2026

Framkvæmdir við hús 4 færast á lokastig. Unnið við frágang á veðurhjúp tengibyggingar milli húsa 4 og 3 ásamt uppsetningu þakglugga og flóttastiga. Áfram var unnið að slagregns- og loftþéttaleikaprófum og viðeigandi úrbótum þar sem á við.

Hólabrekkuskóli
Frágangur á kennslustofum í húsi 4

Febrúar 2026

Áhersla lögð á innri frágang í húsi 4 og tengibyggingu milli húsa 4 og 3. Verið er að undirbúa slagregnsprófanir á gluggum svo tryggja megi sem bestan þéttleika og vatnsöryggi. 

Framkvæmdir við hús 4 eru áfram á áætlun. 

Hús 4
Utanhússklæðning á húsi 4

Janúar 2026

Áframhaldandi framkvæmdir við hús 4. Vinna hafin við tengibyggingu og unnið að frágangi utanhússklæðningar. Unnið að uppsetningu og frágangi á innihurðum og innréttingum ásamt dúklögn og kerfisloftum.

Framkvæmdir við hús 4 á áætlun. 

Hver koma að verkinu?

THG arkitektar

Arkitektar að húsum 1-3

Hornsteinar

Arkitektar að húsum 1-3

Teikna - Teiknistofa Arkitekta

Arkitektar að húsi 4

VSÓ ráðgjöf

Framkvæmdaráðgjöf, verkstýring, burðarþolshönnun, lagnahönnun og umsjón Svansvottunar

Verksýn

Byggingastjórn og framkvæmdaeftirlit

COWI

Brunahönnun

MYRRA hljóðstofa

Hljóðvistarhönnun

Hildiberg

Rafmagnshönnun

Reykjavíkurborg - skrifstofa fasteigna og fasteignaþjónustu

Verkkaupi
Last updated 17.04.2026