Hlíðar - Endurgerð gatna - Langahlíð og Drápuhlíð

Verkið felst í endurgerð götu og uppfærslu veitna í Lönguhlíð frá Eskitorgi að Miklubraut og í Drápuhlíð vestan Lönguhlíðar. Einnig verða gatnamót Miklubrautar og Lönguhlíðar endurgerð. Verkkaupar eru Reykjavíkurborg og Veitur.
Framkvæmdatími: Mars 2026 - Desember 2027
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndir

Hvað verður gert?

Verkinu er skipt upp í 5 verkáfanga. Markmið áfangskiptingar er að tryggja rekstur veitukerfa Veitna og aðgengi umferðar inn í og gegnum hverfið. 

Verkáfangi 1

Lagning hitaveitustofna í gangstétt austan megin í Lönguhlíð í skrefum frá suðri til norðurs og í gangstétt í Drápuhlíð. Þvera þarf akrein í hringtorgi og tengja við núverandi hitaveitustofna í stokki í Eskitorgi. Fráveitu, vatnsveitu og hitaveitulagnir þvera austari akrein Lönguhlíðar. Nýtt styrktarlag og burðarlag lagt í miðdeili Lönguhlíðar og malbikað sem hjáleið. Frágangur á steyptri gangstétt og hjólastíg austan megin í Lönguhlíð.

Verkáfangi 2

Lagning fráveitu, vatnsveitu og hitaveitu yfir Miklubraut. Bráðabirgðatengingar á hitaveitu, nýr hitaveitustofn tengdur norðan Miklubrautar og hitaveitustokkur aflagður. Fráveita og vatnsveita lögð í götu í skrefum frá norðri til suðurs í vestari akrein Lönguhlíðar að Drápuhlíð. Nýtt styrktar- og burðarlag í götu og hjólastíg og frágangur á malbiki og hjólastíg.

Verkáfangi 3

Endurnýjun á götu, fráveitu og vatnsveitu í Drápuhlíð.

Verkáfangi 4

Fráveita og vatnsveita lögð í götu í skrefum frá norðri til suðurs í vestari akrein Lönguhlíðar frá Drápuhlíð að Eskitorgi. Nýtt styrktar- og burðarlag í götu og hjólastíg og frágangur á malbiki og hjólastíg.

Verkáfangi 5

Frágangur á yfirborði í Lönguhlíð, hellulagðar upphækkanir á gatnamótum, steyptar gangstéttar, blágrænar ofanvatnslausnir og græn svæði.

Hvernig gengur?

Febrúar 2026

Framkvæmdir hafa verið boðnar út og sáu Veitur um útboð. Opnun tilboða er 16. mars 2026.

Áætlað er að framkvæmdir geti hafist fljótlega eftir það.

Hver koma að verkinu?

Verkefnisstjóri Reykjavíkurborgar

Skrifstofa framkvæmda og viðhalds

Verkefnisstjóri Veitna

Hákon Róbert Jónsson

Verkhönnun

Verkís hf.
Síðast uppfært 17.02.2026