Hlemmur - 2026-2027
Hvað verður gert?
Meðal annars á að endurgera gatnamót Snorrabrautar og Hverfisgötu og götukafla Snorrabrautar frá Bríetartúni að Hverfisgötu. Nýtt torgsvæði verður gert beggja vegna Borgarlínuássins og Borgarlínuleið lögð í gegnum Hlemmtorg með nýrri Borgarlínustöð.
Samhliða verða fráveitulagnir endurnýjaðar með aðskildu kerfi fyrir regnvatn og skólp, auk endurnýjunar vatns- og hitaveitu, raf- og fjarskiptalagna, lýsingar og umferðarljósa.
- Gatnamót Snorrabrautar og Hverfisgötu verða endurgerð.
- Götukafli á Snorrabraut, frá Bríetartúni að Hverfisgötu verður endurgerður.
- Gerð torgsvæðis norðan borgarlínuáss og gerð torgsvæðis sunnan borgarlínuáss frá Snorrabraut og austur fyrir Hlemm mathöll.
- Gerð Borgarlínu um torgsvæði Hlemms og uppsetningu stoppistöðvar Borgarlínu á svæðinu.
- Endurnýjun fráveitulagna, vatnsveitu- og hitaveitulagna, raflagna, fjarskiptalagna og umferðarljósa.
Hvernig gengur?
Október 2026
Gengið hefur verið til samninga við Gröfu og grjót ehf. sem mun framkvæma þennan hluta endurnýjunar Hlemmtorgs.
Mars 2026
Verkefnið er í undirbúningi og útboð í verkið verða opnuð í mánuðinum.