Hlemmur - 2026
Framkvæmdir við norðursvæði Hlemms og Borgarlínu um Hlemm eru hafnar en stefnt er að því að þeim verði lokið fyrir árslok 2027. Um er að ræða umfangsmikið verkefni sem felur í sér endurgerð gatnamóta og göturýmis, nýtt torgsvæði og uppbyggingu Borgarlínu á svæðinu.
Áætlaður framkvæmdatími: Október 2026 til ársloka 2027
Næsti áfangi snýr að endurgerð Hlemmtorgs og Borgarlínu um Hlemm, verkið felur í sér endurgerð gatnamóta og göturýmis, nýtt torgsvæði og uppbyggingu Borgarlínu á svæðinu.
Hvað verður gert?
- Gatnamót Snorrabrautar og Hverfisgötu verða endurgerð.
- Götukafli á Snorrabraut, frá Bríetartúni að Hverfisgötu verður endurgerður.
- Gerð torgsvæðis norðan borgarlínuáss og gerð torgsvæðis sunnan borgarlínuáss frá Snorrabraut og austur fyrir Hlemm mathöll.
- Gerð Borgarlínu um torgsvæði Hlemms og uppsetningu stoppistöðvar Borgarlínu á svæðinu.
- Endurnýjun fráveitulagna, vatnsveitu- og hitaveitulagna, raflagna, fjarskiptalagna og umferðarljósa.
Hvernig gengur?
Október 2026
Verkið er hafið
Mars 2026
Verkefnið er í undirbúningi
Hver koma að verkinu?
Síðast uppfært 05.10.2026