Helluvatnsbrýr

Viðgerð á brúm milli Helluvatns og Elliðavatns
Framkvæmdatími: janúar - febrúar 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd

Hvað verður gert?

Verkið felst í að endurnýja burðar- og slitklæðningu brúnna milli Helluvatns og Elliðavatns.  Einnig skal endurnýja vega- og brúarvegrið ásamt því að hefla og laga malarslitlagið á veginum við brýrnar.

 

Hvernig gengur?

Febrúar 2026

Þann 3. febrúar milli klukkan 10 og 14 verða brýrnar lokaðar fyrir alla umferð svo hægt sé að sinna nauðsynlegu viðgerðum.

16. febrúar: Vinnu er lokið við dekk og undirstöður brúar. Brúarvegrið verður því næst endurnýjað

24. febrúar: Vinnan við brýrnar er á lokametrunum og stefnt er að því að brýrnar opni aftur fyrir umferð akandi og ríðandi fimmtudaginn 26. febrúar 2026.

26. febrúar: Lokaúttekt hefur farið fram og er viðhaldi við brúna lokið

Janúar 2026

Framkvæmdin hefst í lok janúar. Brúin verður lokuð fyrir akandi umferð en gönguleið verður tryggð.

Hlekkur á fréttatilkynningu: Brú yfir Helluvatn lokað tímabundið vegna framkvæmda | Reykjavik

Í ljós kom eftir að framkvæmdir hófust að brýrnar eru í verra ásigkomulagi en upphafleg áætlun sagði til um. Því verður hestaumferð óheimil út framkvæmdatímann og einnig verður lokað fyrir gangandi umferð í takmarkaðan tíma, sem verður auglýstur þegar nær dregur.

Nóvember 2025

Upphafsfundur hefur átt sér stað, ákveðið hefur verið að hefja framkvæmdir í janúar og ljúka þeim í febrúar

 

Hver koma að verkinu?

Verkefnastjórnun

Emilía Maí Gunnarsdóttir

Verktaki

Gleipnir ehf.

Eftirlit

Verkfræðistofa Bjarna Viðarssonar
Síðast uppfært 24.03.2026