Bætt aðgengi við biðstöðvar Strætó 2026 Yfirborðsfrágangur

Verkefnið snýr að bættu aðgengi að 36 biðstöðvum Strætó
Julí 2026 - Des 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Yfirlitsmynd

Hvað verður gert?

Stór hluti verkefnisins felst í að færa ruslastampa eða fjarlægja ruslatunnur, færa skiltastaura strætó og útbúa leiðilínur frá strætóskýlum að götukanti. Á nokkrum biðstöðum er umfang meira þar sem verið er að fjarlægja eldri núverandi skýli fyrir ný ásamt færslu á núverandi skýlum.

Verkið felst aðalega í eftirfarandi:

® Færslu á ruslastömpum og skiltastaurum strætó á biðstöðvum.

® Uppgreftri fyrir götu- og gangstéttastæðum.

® Fullnaðarfrágangi kantsteins auk gangstéttaryfirborða þar sem það á við.

® Rif og förgun á malbiki, steyptri stétt, hellum, kantsteini, ruslastömpum, staurum og biðskýlum þar sem það á við

® Frágangi á viðvörunarhellum og leiðilínum við biðstöðvar Strætó þar sem það á við

® Yfirborðsfrágangi við biðstöðvar Strætó þar sem það á við.

® Rifi á núverandi grágrýtiskantsteini, hreinsun, lageringu og endurlögn á hluta af grágrýtiskantsteini við biðstöð á Snorrabraut

® Fullnaðarfrágangi fyllinga undir ný gangstéttastæði.

® Færsla og enduruppsetningu á núverandi strætóskýlum þar sem það á við.

® Uppsetning nýrra strætóskýla þar sem það á við.

Hvernig gengur?

Ágúst 2026

Verk er í framkvæmd 

Síðast uppfært 26.08.2026