Bætt aðgengi við biðstöðvar Strætó 2026 Yfirborðsfrágangur
Hvað verður gert?
Stór hluti verkefnisins felst í að færa ruslastampa eða fjarlægja ruslatunnur, færa skiltastaura strætó og útbúa leiðilínur frá strætóskýlum að götukanti. Á nokkrum biðstöðum er umfang meira þar sem verið er að fjarlægja eldri núverandi skýli fyrir ný ásamt færslu á núverandi skýlum.
Verkið felst aðalega í eftirfarandi:
® Færslu á ruslastömpum og skiltastaurum strætó á biðstöðvum.
® Uppgreftri fyrir götu- og gangstéttastæðum.
® Fullnaðarfrágangi kantsteins auk gangstéttaryfirborða þar sem það á við.
® Rif og förgun á malbiki, steyptri stétt, hellum, kantsteini, ruslastömpum, staurum og biðskýlum þar sem það á við
® Frágangi á viðvörunarhellum og leiðilínum við biðstöðvar Strætó þar sem það á við
® Yfirborðsfrágangi við biðstöðvar Strætó þar sem það á við.
® Rifi á núverandi grágrýtiskantsteini, hreinsun, lageringu og endurlögn á hluta af grágrýtiskantsteini við biðstöð á Snorrabraut
® Fullnaðarfrágangi fyllinga undir ný gangstéttastæði.
® Færsla og enduruppsetningu á núverandi strætóskýlum þar sem það á við.
® Uppsetning nýrra strætóskýla þar sem það á við.
Hvernig gengur?
Oktober 2026
Verk er í framkvæmd og er vinnu lokið á 15 biðstöðvum.
- 03 Meistaravellir vestur
- 04 Meistaravellir austur
- 05 Skerjagarðar (Skerjafjörður)
- 06 Stúdentagarðar
- 07 Lækjatorg C
- 09 Laugarnestangi LHÍ
- 10 Dalbraut (Kleppsvegur 40)
- 14 Langholtskirkja vestur
- 15 Langholtskirkja austur
- 21 Víkin
- 24 Hörðaland norður
- 25 Hörðaland suður
- 26 Grímsbær norður
- 27 Grímsbær suður
- 29 Aðalland suður
Ágúst 2026
Verk er í framkvæmd