Afsláttur lífeyrisþega af fasteignagjöldum

Reykjavíkurborg er heimilt að lækka eða fella niður fasteignagjöld hjá tekjulitlum elli- og örorkulífeyrisþegum. Þá veitir Reykjavíkurborg einnig afslátt af fráveitugjaldi sem greitt er til Orkuveitu Reykjavíkur.

Hvað eru fasteignagjöld?

Fasteignagjöld eru árlega lögð á allar fasteignir, nema þær séu undanþegnar með lögum, og ber eigandi ábyrgð á greiðslu þeirra. Fasteignagjöld skiptast í fasteignaskatt, lóðarleigu, sorphirðugjald og gjald vegna endurvinnslustöðva.

Hvernig virkar afslátturinn?

Sveitarfélögin ákveða hvaða reglur gilda um niðurfellingu fasteignagjalda.

 

Fjármála- og áhættustýringarsvið sér svo um að afgreiða afslátt af fasteignaskatti og fráveitugjaldi eftir yfirferð á skattframtölum elli- og örorkulífeyrisþega.

 

Athugið að ekki er veittur afsláttur af lóðaleigu, sorphirðugjöldum og vatnsgjöldum.

Teikning af húsum og persónu á hjóli

Hef ég rétt á afslætti?

Til að hafa rétt á afslættinum þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Vera elli- eða örorkulífeyrisþegi.
  • Vera með skráð lögheimili í eigninni.
  • Vera búsett/ur í eigninni.
  • Vera þinglýstur eigandi eignarinnar.
  • Vera með rétt á vaxtabótum vegna eignarinnar.

Hver eru tekjumörkin?

Tekjumörk vegna lækkunar fasteignaskatts og fráveitugjalds á árinu 2025 eru:

  • Réttur til 100% lækkunar

Einstaklingur með tekjur* allt að 5.750.000 kr.
Samskattaðir einstaklingar með tekjur allt að 8.020.000 kr.

  • Réttur til 80% lækkunar

Einstaklingur með tekjur* á bilinu 5.750.001 til 6.580.000 kr.
Samskattaðir einstaklingar með tekjur á bilinu 8.020.001 til 8.890.000 kr.

  • Réttur til 50% lækkunar

Einstaklingur með tekjur* á bilinu 6.580.001 til 7.650.000 kr.
Samskattaðir einstaklingar með tekjur á bilinu 8.890.001 til 10.620.000 kr.

Við álagningu fasteignagjalda í janúar 2025 er hlutfall afsláttar elli- og örorkulífeyrisþega til bráðabirgða það sama og það var í árslok 2024. Álagning vegna tekna ársins 2024 liggur fyrir í júní 2025, stuttu síðar hefst vinna við útreikning afsláttar og verða allar breytingar tilkynntar bréflega í lok október 2025.

*Heildartekjur taka til stofn tekjuskatts og útsvars, erlendra tekna ásamt fjármagnstekjum, sem eru samanlagðir reitir 2.7 ásamt 2.8 að viðbættum 3.11.

Þarf ég að gera eitthvað?

Það þarf ekki að sækja sérstaklega um afslátt vegna þessara gjalda. Fjármála- og áhættustýringarsvið sér um að framkvæma breytingar á fasteignaskatti og fráveitugjaldi eftir yfirferð á skattframtölum elli- og örorkulífeyrisþega.

Afsláttarþegar sem eiga von á endurgreiðslu geta skráð upplýsingar um bankareikning á Mínum síðum. Einnig er hægt að óska eftir skráningu upplýsinga um bankareikninga í síma 411 1111 og í netfanginu upplysingar@reykjavik.is.



Hægt er að senda inn erindi vegna fasteignagjalda í gegnum Mínar síður.

Hvaða lög og reglugerðir gilda um afsláttinn?

Sveitarfélögum er heimilt að lækka eða fella niður fasteignaskatt sem tekjulitlum elli- og örorkulífeyrisþegum er gert að greiða samkvæmt 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga. Sveitarfélögum er skylt að setja sér reglur um beitingu heimildarinnar. Reykjavíkurborg veitir einnig afslátt af fráveitugjaldi sem greitt er til Orkuveitu Reykjavíkur á grundvelli 4. mgr. 4. gr. laga nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitna. Lækkun á fasteignaskatti og fráveitugjaldi er byggð á reglum sem borgarstjórn setur, sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga. Reglur um vaxtabætur vegna eignar styðjast við B-lið 68. gr. laga nr. 90/2003 um tekju- og eignaskatt. Ákvarðanir vegna þessara reglna eru kæranlegar til innanríkisráðuneytisins innan þriggja mánaða frá ákvörðuninni á grundvelli 111. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Fyrirspurnir

Þjónustuver veitir upplýsingar um álagningu fasteignagjalda og breytingar á þeim í síma 411 1111, í gegnum netspjall og netfangið upplysingar@reykjavik.is.