Stein Olav Romslo
Um Stein Olav
Stein Olav fæddist þann 13. júní 1993 í Noregi en hann ólst upp í bænum Ål í Hallingdal. Hann lauk stúdentsprófi árið 2012 og flutti til Þrándheims þar sem hann nam stærðfræði og raungreinakennslu. Hann útskrifaðist með meistarapróf í stærðfræði frá norska tækniháskólanum NTNU árið 2018. Í júlí sama ár flutti hann til Íslands og lærði íslensku í Háskóla Íslands. Samhliða íslenskunáminu vann hann við stærðfræðikennslu í Hagaskóla í Vesturbæ Reykjavíkur og kenndi þar til vorsins 2026. Maki Stein Olav er Aldís Mjöll Geirsdóttir og saman eiga þau eina dóttur.
Menntun
2019: diplóma í íslensku sem öðru tungumáli (HÍ)
2018: M.Sc. í stærðfræði og raungreinakennslu (NTNU)
Starfsferill
Stein Olav hefur starfað sem kennari í Hagaskóla í tæplega átta ár. Meðfram skóla og námi í Noregi vann hann meðal annars í bókabúð í samtals 10 ár. Hann var aðstoðarkennari í nokkrum áföngum í NTNU. Árið 2016 var hann gæðastjóri Stúdentaráðs NTNU í fullu starfi.
Stjórna- og nefndarseta
Ritari framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar – jafnaðarflokks Íslands