Fyrsta skóflustunga að nýrri Þjóðarhöll

Fyrsta skóflustungan tekin í dag. Fyrsta skóflustungan tekin í dag.
Fyrsta skóflustungan tekin í dag.

Nýr heimavöllur landsliða og bylting fyrir aðstöðu grunnskólabarna í Laugardal til æfinga og skólastarfs

Framkvæmdir formlega hafnar

Fyrsta skóflustunga að nýrri Þjóðarhöll í Laugardal var tekin í dag, fimmtudaginn 12. nóvember 2026. Þar með eru framkvæmdir formlega hafnar við nýjan heimavöll íslenskra landsliða í innanhússíþróttum, mannvirki sem stenst alþjóðlegar kröfur um keppnisaðstöðu. Ný Þjóðarhöll markar tímamót í uppbyggingu Laugardals og gjörbyltir aðstöðu barna og ungmenna í Laugardal til æfinga, keppni og skólastarfs.

Athöfnin hófst kl. 13:00 í Laugardalshöll að viðstöddum fjölda gesta. Ávörp fluttu Thomas Möller, formaður stjórnar Þjóðarhallar ehf.; Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra; Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur; Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra; Sveinbjörn Jónsson, verkefnastjóri hjá Íslenskum aðalverktökum; og Willum Þór Þórsson, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
ð ávörpum loknum var gengið út á lóð Þjóðarhallar, þar sem ungt afreksíþróttafólk úr landsliðum og félögum í Laugardal tók fyrstu skóflustunguna.
 
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri flytur tölu í Laugardalshöll.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri flutti stutta tölu.

Fyrstu skóflustunguna tóku:

  • Helga Jenný Vigfúsdóttir – Handknattleikssamband Íslands
  • Hulda María Agnarsdóttir – Körfuknattleikssamband Íslands
  • Fjölnir Logi Halldórsson – Blaksamband Íslands
  • Þorsteinn Orri Ólafsson – Fimleikasamband Íslands
  • Hjalti Björnsson – Glímufélagið Ármann
  • Saga Björgvinsdóttir – Knattspyrnufélagið Þróttur
 
Með þeim stóðu forsvarsmenn sérsambandanna og félaganna: Jón Halldórsson, formaður Handknattleikssambands Íslands; Kristinn Albertsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands; Hulda Elma Eysteinsdóttir fyrir hönd Blaksambands Íslands; Sigurbjörg Fjölnisdóttir fyrir hönd Fimleikasambands Íslands; Guðrún Harðardóttir, formaður Glímufélagsins Ármanns; og Bjarnólfur Lárusson, formaður Knattspyrnufélagsins Þróttar.

Með skóflustungunni hefst nýr kafli í íslenskri íþróttasögu. Ný Þjóðarhöll verður heimavöllur landsliðanna okkar og vettvangur stórra stunda, og hún bætir jafnframt aðstöðu barna og ungmenna í Laugardal. Það er við hæfi að ungt afreksíþróttafólk taki fyrstu skóflustunguna, því það er fyrir það og komandi kynslóðir sem við byggjum þetta hús.

Thomas Möller, formaður stjórnar Þjóðarhallar ehf.

Það er óhætt að segja að þetta sé gleðidagur. Að baki þessum áfanga liggur mikil vinna sem hófst í mennta- og barnamálaráðuneytinu, í góðu samstarfi við borgina, fjármálaráðuneytið og íþróttahreyfinguna. Ég þakka öllum sem hafa lagt hönd á plóg og unnið að því að gera þetta að veruleika. Svona náum við árangri þegar við tökum höndum saman, Nú hefjast framkvæmdir við verkefni sem svo margir hafa beðið eftir. Það er mikið tilhlökkunarefni!

Inga Sæland ráðherra íþróttamála

Með Þjóðarhöllinni er Reykjavíkurborg að fjárfesta í framtíð barna og ungmenna í Reykjavík. Þjóðarhöllin mun bylta aðstöðu íþróttafélaganna Þróttar og Ármanns í Laugardal og skapa ný tækifæri fyrir grunnskólabörn til íþróttaiðkunar, hreyfingar og þátttöku í öflugu félagsstarfi. Um leið styrkjum við Laugardalinn enn frekar sem hjarta íþrótta, útivistar og lýðheilsu á Íslandi.

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri
Þjóðarhöllin er afrakstur samstarfs ríkis, Reykjavíkurborgar og íþróttahreyfingarinnar. Hún verður um 17.700 fermetrar, með 8.600 sætum, og getur tekið allt að 12.000 gesti á viðburðum. Stefnt er að því að Þjóðarhöllin verði tilbúin í janúar 2030, í tæka tíð fyrir heimsmeistaramót karla í handknattleik 2031 sem Ísland heldur ásamt Danmörku og Noregi.

Um Þjóðarhöll

  • Nýtt fjölnota mannvirki fyrir innanhússíþróttir, menningu, kennslu og viðburði, í Laugardal sunnan við Laugardalshöll. Þjóðarhöllin tengist bæði Laugardalshöll og Frjálsíþróttahöllinni.
  • Um 17.700 m², 8.600 sæti og allt að 12.000 gestir á viðburðum.
  • Laugardalshöll, sem var vígð 1965, uppfyllir ekki lengur alþjóðlegar kröfur um keppnisaðstöðu og landsliðin hafa leikið þar á undanþágu.
  • Verksamningur um hönnun og byggingu var undirritaður 30. september 2026 við Íslenska aðalverktaka og samstarfsaðila þeirra: ASK arkitekta, COWI, LPO arkitekter, Ísloft, EOH og Landhönnun. Samningurinn var gerður að loknu forvali og samkeppnisútboði.
  • Samningsupphæð er 16,825 milljarðar króna með virðisaukaskatti, bundin vísitölu byggingarkostnaðar frá janúar 2026. Ríkissjóður Íslands og Reykjavíkurborg fjármagna verkefnið.
  • Þjóðarhöll ehf. var stofnuð í janúar 2024 og er í eigu ríkissjóðs Íslands (55%) og Reykjavíkurborgar (45%).
  • Stefnt er að BREEAM-umhverfisvottun með einkunnina „Very Good“. Þjóðarhöllin verður hönnuð samkvæmt algildri hönnun, sem tryggir að húsið verði opið öllum almenningi.