Fyrsta skóflustunga að nýrri Þjóðarhöll
Nýr heimavöllur landsliða og bylting fyrir aðstöðu grunnskólabarna í Laugardal til æfinga og skólastarfs
Framkvæmdir formlega hafnar
Fyrsta skóflustunga að nýrri Þjóðarhöll í Laugardal var tekin í dag, fimmtudaginn 12. nóvember 2026. Þar með eru framkvæmdir formlega hafnar við nýjan heimavöll íslenskra landsliða í innanhússíþróttum, mannvirki sem stenst alþjóðlegar kröfur um keppnisaðstöðu. Ný Þjóðarhöll markar tímamót í uppbyggingu Laugardals og gjörbyltir aðstöðu barna og ungmenna í Laugardal til æfinga, keppni og skólastarfs.
Fyrstu skóflustunguna tóku:
-
Helga Jenný Vigfúsdóttir – Handknattleikssamband Íslands
-
Hulda María Agnarsdóttir – Körfuknattleikssamband Íslands
-
Fjölnir Logi Halldórsson – Blaksamband Íslands
-
Þorsteinn Orri Ólafsson – Fimleikasamband Íslands
-
Hjalti Björnsson – Glímufélagið Ármann
-
Saga Björgvinsdóttir – Knattspyrnufélagið Þróttur
Með skóflustungunni hefst nýr kafli í íslenskri íþróttasögu. Ný Þjóðarhöll verður heimavöllur landsliðanna okkar og vettvangur stórra stunda, og hún bætir jafnframt aðstöðu barna og ungmenna í Laugardal. Það er við hæfi að ungt afreksíþróttafólk taki fyrstu skóflustunguna, því það er fyrir það og komandi kynslóðir sem við byggjum þetta hús.
Það er óhætt að segja að þetta sé gleðidagur. Að baki þessum áfanga liggur mikil vinna sem hófst í mennta- og barnamálaráðuneytinu, í góðu samstarfi við borgina, fjármálaráðuneytið og íþróttahreyfinguna. Ég þakka öllum sem hafa lagt hönd á plóg og unnið að því að gera þetta að veruleika. Svona náum við árangri þegar við tökum höndum saman, Nú hefjast framkvæmdir við verkefni sem svo margir hafa beðið eftir. Það er mikið tilhlökkunarefni!
Með Þjóðarhöllinni er Reykjavíkurborg að fjárfesta í framtíð barna og ungmenna í Reykjavík. Þjóðarhöllin mun bylta aðstöðu íþróttafélaganna Þróttar og Ármanns í Laugardal og skapa ný tækifæri fyrir grunnskólabörn til íþróttaiðkunar, hreyfingar og þátttöku í öflugu félagsstarfi. Um leið styrkjum við Laugardalinn enn frekar sem hjarta íþrótta, útivistar og lýðheilsu á Íslandi.
Um Þjóðarhöll
-
Nýtt fjölnota mannvirki fyrir innanhússíþróttir, menningu, kennslu og viðburði, í Laugardal sunnan við Laugardalshöll. Þjóðarhöllin tengist bæði Laugardalshöll og Frjálsíþróttahöllinni.
-
Um 17.700 m², 8.600 sæti og allt að 12.000 gestir á viðburðum.
-
Laugardalshöll, sem var vígð 1965, uppfyllir ekki lengur alþjóðlegar kröfur um keppnisaðstöðu og landsliðin hafa leikið þar á undanþágu.
-
Verksamningur um hönnun og byggingu var undirritaður 30. september 2026 við Íslenska aðalverktaka og samstarfsaðila þeirra: ASK arkitekta, COWI, LPO arkitekter, Ísloft, EOH og Landhönnun. Samningurinn var gerður að loknu forvali og samkeppnisútboði.
-
Samningsupphæð er 16,825 milljarðar króna með virðisaukaskatti, bundin vísitölu byggingarkostnaðar frá janúar 2026. Ríkissjóður Íslands og Reykjavíkurborg fjármagna verkefnið.
-
Þjóðarhöll ehf. var stofnuð í janúar 2024 og er í eigu ríkissjóðs Íslands (55%) og Reykjavíkurborgar (45%).
-
Stefnt er að BREEAM-umhverfisvottun með einkunnina „Very Good“. Þjóðarhöllin verður hönnuð samkvæmt algildri hönnun, sem tryggir að húsið verði opið öllum almenningi.