Forsætisnefnd
Ár 2026, föstudaginn 13. nóvember, var haldinn 383. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10:06. Viðstödd voru Björg Magnúsdóttir, Einar Þorsteinsson, Brynjar Níelsson, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Stein Olav Romslo. Eftirtaldir áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum: Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir starfsmenn og embættismenn sátu fundinn: Helga Björk Laxdal og Ólöf Magnúsdóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 17. nóvember 2026. Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrá sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:
a) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um endurskoðun á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 sbr. 1. liður fundargerðar borgarráðs frá 12. nóvember
b) Tillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar um að aukinn meirihluta þurfi til að selja mikilvæg innviðafélög í eigu sveitarfélaga
c) Umræða um skóla- og frístundastarf í fremstu röð (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins)
d) Tillaga borgarfulltrúa Vinstrisins um úttekt á breytingum vegna áfengissölu á íþróttaviðburðum
e) Tillaga Sósíalistaflokks Íslands um að efla faglegan undirbúning í leikskólum Reykjavíkurborgar MSS26060088 -
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 11. nóvember 2026, varðandi breytingu á 10., 35., 63., og 64.gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, ásamt fylgiskjölum. 10. gr. tekur minniháttar breytingum á milli umræðna með hliðsjón af breyttri nefndarskipan, 63.,64., og 35. gr. taka ekki breytingum á milli umræðna.
Vísað til síðari umræðu í borgarstjórn. MSS26060008Fylgigögn
-
Fram fer kynning á fundarumsjónarkerfi borgarstjórnar.
Nanna Rún Ásgeirsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. ÞON22120023
-
Fram fer kynning á helstu breytingum og framkvæmdum í Ráðhúsi og á Tjarnargötu 12 á næstu misserum.
Bjarki Þór Logason og Ómar Þórdórsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26100059
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa í ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða um að fulltrúar í Reykjavíkurráði ungmenna fái áheyrnarrétt í fleiri fagráðum, sbr. 5. liður fundargerðar borgarstjórnar frá 10. febrúar 2026.
Frestað.Indriði Nökkvi Þóreyjarson og Gísli Ólafsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26020042
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 11:20
Björg Magnúsdóttir Brynjar Níelsson
Einar Þorsteinsson Stein Olav Romslo
Sanna Magdalena Mörtudottir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð forsætisnefndar 13.11.2026