Forsætisnefnd - Fundur nr. 383

Forsætisnefnd

Ár 2026, föstudaginn 13. nóvember, var haldinn 383. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10:06. Viðstödd voru Björg Magnúsdóttir, Einar Þorsteinsson, Brynjar Níelsson, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Stein Olav Romslo. Eftirtaldir áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum: Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir starfsmenn og embættismenn sátu fundinn: Helga Björk Laxdal og Ólöf Magnúsdóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 17. nóvember 2026. Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrá sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:

    a) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um endurskoðun á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 sbr. 1. liður fundargerðar borgarráðs frá 12. nóvember
    b) Tillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar um að aukinn meirihluta þurfi til að selja mikilvæg innviðafélög í eigu sveitarfélaga
    c) Umræða um skóla- og frístundastarf í fremstu röð (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins)
    d) Tillaga borgarfulltrúa Vinstrisins um úttekt á breytingum vegna áfengissölu á íþróttaviðburðum
    e) Tillaga Sósíalistaflokks Íslands um að efla faglegan undirbúning í leikskólum Reykjavíkurborgar MSS26060088

  2. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 11. nóvember 2026, varðandi breytingu á 10., 35., 63., og 64.gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, ásamt fylgiskjölum. 10. gr. tekur minniháttar breytingum á milli umræðna með hliðsjón af breyttri nefndarskipan, 63.,64., og 35. gr. taka ekki breytingum á milli umræðna.
    Vísað til síðari umræðu í borgarstjórn. MSS26060008

    Fylgigögn

  3. Fram fer kynning á fundarumsjónarkerfi borgarstjórnar.

    Nanna Rún Ásgeirsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. ÞON22120023

  4. Fram fer kynning á helstu breytingum og framkvæmdum í Ráðhúsi og á Tjarnargötu 12 á næstu misserum.

    Bjarki Þór Logason og Ómar Þórdórsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26100059

  5. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa í ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða um að fulltrúar í Reykjavíkurráði ungmenna fái áheyrnarrétt í fleiri fagráðum, sbr. 5. liður fundargerðar borgarstjórnar frá 10. febrúar 2026.
    Frestað.

    Indriði Nökkvi Þóreyjarson og Gísli Ólafsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26020042

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 11:20

Björg Magnúsdóttir Brynjar Níelsson

Einar Þorsteinsson Stein Olav Romslo

Sanna Magdalena Mörtudottir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð forsætisnefndar 13.11.2026