16361 Autodesk hugbúnaðarleyfi, EES
F.h. Upplýsingatækniþjónustu Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Autodesk hugbúnaðarleyfi, EES útboð nr. 16361.
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Skrifstofa fjármálaþjónustu og innkaupa f.h. Upplýsingatækniþjónustu Reykjavíkurborgar óskar eftir tilboðum í endurnýjun á Forma samningi frá AutoDesk samkvæmt þessum útboðsgögnum.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 11:00: þann 27. október 2026. Hægt er að breyta tungumáli vefsíðunnar með því að velja "Íslenska" í flettiglugganum neðst til vinstri.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 30. nóvember 2026.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda