Forsætisnefnd - Fundur nr. 381

Forsætisnefnd

Ár 2026, föstudaginn 2. október, var haldinn 381. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10:04. Viðstödd voru Björg Magnúsdóttir, Einar Þorsteinsson, Sanna Magdalena Mörtudóttir, Sigrún Ásta Einarsdóttir og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir. Eftirtaldir áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum: Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir starfsmenn og embættismenn sátu fundinn: Helga Björk Laxdal og Ólöf Magnúsdóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 6. október 2026. Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrá sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:

    a) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um húsnæði fyrir tónlistar- og menningarstarfsemi
    b) Tillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar um öflugri íslenskukennslu og jöfn tækifæri barna af erlendum uppruna
    c) Ályktunartillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um fjölda borgarfulltrúa í borgarstjórn Reykjavíkur
    d) Tillaga borgarfulltrúa Miðflokksins um aukna viðveru lögreglu í Breiðholti
    e) Tillaga borgarfulltrúa Vinstrisins um vinnurými listafólks
    f) Tillaga borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um útsvar á fjármagnstekjur
    g) Kosning í borgarráð
    h) Kosning í umhverfis- og skipulagsráðs MSS26060088

  2. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 30. september 2026, þar sem tilkynnist að Sunna Jóhannsdóttir verði fulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur í endurskoðunarnefnd Reykjavíkur í samræmi við 9. gr. sameignarsamnings um Orkuveitu Reykjavíkur, ásamt fylgiskjölum.
    Vísað til borgarstjórnar. MSS26080028

    Fylgigögn

  3. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Samfylkingarinnar, dags. 22. september 2026, um breytingar á samþykktum vegna meiriháttar skipulagsbreytinga, sbr. 9. liður fundargerðar forsætisnefndar frá 22. september 2026.
    Frestað. MSS26090100

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar 30. september 2026, þar sem tilkynnt er um veikindaleyfi Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarfulltrúa. MSS26090132

    Fylgigögn

  5. Bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 30. september 2026, þar sem fram kemur að borgarstjórnarflokkur Miðflokksins hafi tilkynnt að starfsmaður flokksins, Kjartan Magnússon, muni hér eftir aðstoða borgarstjórnarflokkinn á fundum borgarstjórnar. MSS26090133

    Fylgigögn

  6. Bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 30. september 2026, þar sem fram kemur að borgarstjórnarflokkur Viðreisnar hafi tilkynnt að starfsmaður flokksins, Jóhann Karl Ásgeirsson Gígja, muni hér eftir aðstoða borgarstjórnarflokkinn á fundum borgarstjórnar. MSS26090133

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 10:43

Björg Magnúsdóttir Einar Þorsteinsson

Sanna Magdalena Mörtudottir Sigrún Ásta Einarsdóttir

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð forsætisnefndar 02.10.2026