Forsætisnefnd
Ár 2026, föstudaginn 2. október, var haldinn 381. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10:04. Viðstödd voru Björg Magnúsdóttir, Einar Þorsteinsson, Sanna Magdalena Mörtudóttir, Sigrún Ásta Einarsdóttir og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir. Eftirtaldir áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum: Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir starfsmenn og embættismenn sátu fundinn: Helga Björk Laxdal og Ólöf Magnúsdóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 6. október 2026. Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrá sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:
a) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um húsnæði fyrir tónlistar- og menningarstarfsemi
b) Tillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar um öflugri íslenskukennslu og jöfn tækifæri barna af erlendum uppruna
c) Ályktunartillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um fjölda borgarfulltrúa í borgarstjórn Reykjavíkur
d) Tillaga borgarfulltrúa Miðflokksins um aukna viðveru lögreglu í Breiðholti
e) Tillaga borgarfulltrúa Vinstrisins um vinnurými listafólks
f) Tillaga borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um útsvar á fjármagnstekjur
g) Kosning í borgarráð
h) Kosning í umhverfis- og skipulagsráðs MSS26060088 -
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 30. september 2026, þar sem tilkynnist að Sunna Jóhannsdóttir verði fulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur í endurskoðunarnefnd Reykjavíkur í samræmi við 9. gr. sameignarsamnings um Orkuveitu Reykjavíkur, ásamt fylgiskjölum.
Vísað til borgarstjórnar. MSS26080028Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Samfylkingarinnar, dags. 22. september 2026, um breytingar á samþykktum vegna meiriháttar skipulagsbreytinga, sbr. 9. liður fundargerðar forsætisnefndar frá 22. september 2026.
Frestað. MSS26090100Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar 30. september 2026, þar sem tilkynnt er um veikindaleyfi Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarfulltrúa. MSS26090132
Fylgigögn
-
Bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 30. september 2026, þar sem fram kemur að borgarstjórnarflokkur Miðflokksins hafi tilkynnt að starfsmaður flokksins, Kjartan Magnússon, muni hér eftir aðstoða borgarstjórnarflokkinn á fundum borgarstjórnar. MSS26090133
Fylgigögn
-
Bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 30. september 2026, þar sem fram kemur að borgarstjórnarflokkur Viðreisnar hafi tilkynnt að starfsmaður flokksins, Jóhann Karl Ásgeirsson Gígja, muni hér eftir aðstoða borgarstjórnarflokkinn á fundum borgarstjórnar. MSS26090133
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 10:43
Björg Magnúsdóttir Einar Þorsteinsson
Sanna Magdalena Mörtudottir Sigrún Ásta Einarsdóttir
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð forsætisnefndar 02.10.2026