Þróunarsjóður
Leikskólum, grunnskólum, frístundamiðstöðvum og skólahljómsveitum í Reykjavík gefst kostur á að sækja um styrki frá skóla- og frístundaráði borgarinnar.
Árið 2026 verður eingöngu úthlutað styrkjum til B-hluta verkefna og er umsóknarfrestur er til og með 01. mars 2026. Gert er ráð fyrir að verkefni verði framkvæmd skólaárið 2026-2027 og er heildarupphæð úthlutunar fyrir árið 2026 er fimmtíu milljónir króna.
Forsendur styrkveitingar
A-hluti
Styrkir sem veittir eru til allra grunnskóla, leikskóla, frístundamiðstöðva og skólahljómsveita út frá einföldu og skýru umsóknarferli. Fjárhæðir styrkja eru ákveðnar út frá reiknireglu sem tekur til fjölda árlegra stöðugilda, barnafjölda og rekstrarumfangs. ATH. Ekki verður úthlutað styrkjum til A-hluta verkefna árið 2026
B-hluti
Fyrirspurnir um B-hluta styrki er hægt að senda á Hjört Ágústsson, skrifstofustjóra nýsköpunar og þróunar hjá SFS.