Byggingarréttur í Suðurhólum og Hraunbergi

Reykjavíkurborg býður til sölu byggingarrétt á tveimur íbúðarhúsalóðum í Breiðholti. Annars vegar er um að ræða byggingarrétt á lóðinni Suðurhólar 27, þar sem gert er ráð fyrir raðhúsi og sérhæðum á tveimur til þremur hæðum með allt að 40 íbúðum. Hins vegar er um að ræða lóðina Hraunberg 1, þar sem gert er ráð fyrir íbúðarhúsi á tveimur til þremur hæðum með allt að 16 íbúðum og þjónustu-, verslunar- eða samfélagsrými á jarðhæð.

Loftmynd af Breiðholti.

Nánari upplýsingar um lóðina og útboðsskilmála er að finna í úthlutunar- og útboðsskilmálum sem birtir eru á útboðsvefnum. Þá er vísað til meðfylgjandi deiliskipulags og mæliblaða fyrir lóðirnar. 

Fyrirspurnum verður svarað á útboðsvef. Niðurstaða útboðs verður birt á útboðsvef Reykjavíkurborgar og á slóðinni https://reykjavik.is/athafnalif

Loftmyndir af lóðunum

Fundargerð frá opnun tilboða

Árið 2026, þann 9. október kl. 12:00 voru kauptilboð opnuð í Borgartúni 12-14 Reykjavík, í "Kauptilboð lögaðila í byggingarrétt íbúðarhúsnæðis á lóðinni Hraunberg 1." Tilboð opnaði og fundargerð ritaði Eva Björk Hickey.  

Alls bárust tvö tilboð     Lóð
Landslagnir ehf. kr. 122.651.600 Hraunberg 1
E. Sigurðsson ehf. kr. 52.000.000 Hraunberg 1

Fleiri tilboð bárust ekki.