Íþróttavika Evrópu - Hreyfum okkur meira í daglega lífinu

Ungmenni á reiðhjólum við Gufunesbæ
Ungmenni á reiðhjólum við Gufunesbæ

Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin ár hvert dagana 23.–30. september í yfir 40 Evrópulöndum. Íþróttavikan er ætluð öllum, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi.

Markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Lögð er sérstök áhersla á að virkja grasrótina og hvetja fólk til að hreyfa sig meira í daglegu lífi. Evrópubúar sameinast undir slagorðinu #BeActive.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hefur undanfarin ár hlotið styrk í gegnum Erasmus+ styrkjakerfi Evrópusambandsins (European Commission) vegna Íþróttaviku Evrópu.

Skólabörn að leik á skólalóð
Börn að leik á skólalóð.

Margir skemmtilegir og fjölbreyttir viðburðir verða á dagskrá í Reykjavík í tilefni Íþróttaviku Evrópu og hvetjum við öll til þess að taka þátt. Allir viðburðir Íþróttaviku Evrópu er að finna á beactive.is

Sérstakur opnunarviðburður verður haldinn á Kaffi Flóru í Grasagarðinum miðvikudaginn 23. september, klukkan 17:15 þar sem Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, setur BeActive vikuna. Jakob Frímann Þorsteinsson, doktor í útivist og Sólrún Harðardóttir fjalla um möguleikana til fjölbreyttrar útivistar í náttúru Reykjavík. Boðið verður upp á súpu og ævintýri fyrir börn.

Heildardagskrá í Reykjavík:

Miðvikudagur 23. september

kl. 10:45 - Leikfimi fyrir eldri borgara í Víkingsheimilinu í Víkinni

kl. 10:30 – 11:00 – Gönguferð um miðbæinn frá Samfélagshúsinu Vitatorgi

kl. 14:00 - 15:00 - Harmónikkuball með Vitatorgsbandinu í Samfélagshúsinu Vitatorgi, Lindargötu 59

kl. 17:00 - 19:00 - Skíðagöngufélagið Ullur – Kynning á gönguskíðum á bílastæði Árbæjarsafns

kl. 17:15 – Opnunarviðburður á Kaffi Flóru í Grasagarðinum

kl. 18:00 - Hjólaæfing með Víkingum í Víkingsheimilinu í Víkinni

Hjólreiðafólk á hjólastíg við Öskjuhlíð
Hjólreiðafólk á hjólastíg við Öskjuhlíð

Fimmtudagur 24. september

kl. 10:00 - 60+ þrek í Þrótti í Laugardal

kl. 10:30 - 11:30 - Heilsuefling 60+ Virkir Víkingar í Virkinu Safamýri

kl. 11:30 - 12:30 - 60+ Ármann í Ármannshúsinu í Laugardal

kl. 13:00 - Bollywood Iceland dansæfing í Samfélagshúsinu Bólstaðarhlíð 43

kl. 13:45 - Fræðsluerindi frá Heyrnahjálp í Samfélagshúsinu Bólstaðarhlíð 43

kl. 16:30 - Gufugusa á Skarfakletti. Skráning á fargufa.is

kl. 17:15 - Hlaupahópur Ármanns fyrir utan Laugardalslaug

kl. 18:30 - 19:30 - Fullorðins frjálsar Ármanns í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal

kl. 19:00 - 21:00 - Fullorðins fimleikar fyrir 18 ára+ í Ármannshúsinu í Laugardal

Grafarvogslaug
Kátir krakkar í Grafarvogslaug

Föstudagur 25. september

kl. 10:30 - 11:00 - Leikfimi með Sirrý í Samfélagshúsinu Vitatorgi, Lindargötu 59

kl. 15:00 - Gufugusa í Gufunesi. Skráning á fargufa.is

kl. 16:00 - 18:00 - Bangsaganga á Úlfarsfell

kl. 17:00 - Kynning á sjósundi á Ylströndinni í Nauthólsvík

kl. 17:00 og 20:00 - Sundballett með Eilífðinni í Vesturbæjarlaug

kl. 19:00 - Samflot með Unni Valdísi í Árbæjarlaug

kl. 20:00 - Zumba með Max Hagan í Grafarvogslaug

Hreyfing er heilsubót
Hreyfing er heilsubót

Laugardagur 26. september

kl. 09:00 - Hlaupahópur Ármanns fyrir utan Laugardalslaug

kl. 10:00 - Fjallahjólaferð fjölskyldunnar við Rauðavatn og Austurheiðar

kl. 10:30 - Ganga um hverfið úr Samfélagshúsinu Bólstaðarhlíð 43

kl. 10:30 - 11:30 - Zumba í Samfélagshúsinu Vitatorgi, Lindargötu 59

kl. 11:00Heiðmerkurhlaupið. Báðar vegalengdir hefjast frá Elliðavatni.

kl. 12:00 - 14:00 - Dr. Bike, Hjólafélag Reykjavíkur, Rathlaup og Folf í Frístundagarðinum Gufunesi

kl. 14:00 - Glaðari þú og Zumba á Ylströndinni í Nauthólsvík - Frítt inn á viðburð

 

Sunnudagur 27. september

kl. 10:00 - Samhjól með Víkingum í Víkingsheimilinu í Víkinni

Glaðari þú sjósundshópurinn að gera æfingar í Nauthólsvík
Glaðari þú sjósundshópurinn að gera æfingar í Nauthólsvík.

kl. 12:00 - 16:00 - Hobbyhorse, jóga og ratleikur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

 

Mánudagur 28. september

kl. 10:30 - 11:00 - Leikfimi með Sirrý í Samfélagshúsinu Vitatorgi, Lindargötu 59

kl. 10:30 - 11:30 - Heilsuefling 60+ í Virkinu Safamýri

kl. 10:45 - Leikfimi fyrir eldri borgara í Víkingsheimilinu í Víkinni

kl. 13:00 - 13:40 - Bollywood dansæfing í Hvassaleiti 58-60

kl. 13:30 - Zumba með Tanyu í Samfélagshúsinu Aflagranda

kl. 18:00 - Hjólaæfing með Víkingum í Víkingsheimilinu í Víkinni

Góðar æfingar hjá Berti borgurum Fylkis
Teygjuæfingar hjá Berti borgurum Fylkis

Þriðjudagur 29. september

kl. 10:00 - 11:00 - Púttgolf í Samfélagshúsinu Vitatorgi, Lindargötu 59

kl. 10:00 - 60+ Þrek í Þrótti í Laugardal

kl. 10:30 - 11:00 - Þátttakendastýrðar Jafnvægisæfingar í Samfélagshúsinu Bólstaðarhlíð 43

kl. 11:00 - 11:45 - Bollywood Zumba í Borgum

kl. 11:30 - 60+ Ármann í Ármannshúsinu í Laugardal

kl. 13:00 - 13:30 - Leikfimi með Snorra Íþróttafræðingi í Samfélagshúsinu Bólstaðarhlíð 43

kl. 14:00 - 14:45 - Bollywood Zumba í Hraunbæ 105

kl. 17:15 - Hlaupahópur Ármanns fyrir utan Laugardalslaug

kl. 18:30 - 19:30 - Fullorðins Frjálsar Ármanns í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal

kl. 19:00 - 21:00 - Fullorðins fimleikar fyrir 18 ára +í Ármannshúsinu í Laugardal

kl. 20:30 - 21:30 - Yin Jóga með Ylfu í Víkingsheimilinu í Safamýri - Karatesalnum

 

Miðvikudagur 30. september

kl. 10:30 - 11:00 - Boccia í Samfélagshúsinu Bólstaðarhlíð 43

kl. 10:30 - 11:00 - Gönguferð um miðbæinn frá Samfélagshúsinu Vitatorgi