Íþróttavika Evrópu - Hreyfum okkur meira í daglega lífinu
Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin ár hvert dagana 23.–30. september í yfir 40 Evrópulöndum. Íþróttavikan er ætluð öllum, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi.
Markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Lögð er sérstök áhersla á að virkja grasrótina og hvetja fólk til að hreyfa sig meira í daglegu lífi. Evrópubúar sameinast undir slagorðinu #BeActive.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hefur undanfarin ár hlotið styrk í gegnum Erasmus+ styrkjakerfi Evrópusambandsins (European Commission) vegna Íþróttaviku Evrópu.
Margir skemmtilegir og fjölbreyttir viðburðir verða á dagskrá í Reykjavík í tilefni Íþróttaviku Evrópu og hvetjum við öll til þess að taka þátt. Allir viðburðir Íþróttaviku Evrópu er að finna á beactive.is.
Sérstakur opnunarviðburður verður haldinn á Kaffi Flóru í Grasagarðinum miðvikudaginn 23. september, klukkan 17:15 þar sem Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, setur BeActive vikuna. Jakob Frímann Þorsteinsson, doktor í útivist og Sólrún Harðardóttir fjalla um möguleikana til fjölbreyttrar útivistar í náttúru Reykjavík. Boðið verður upp á súpu og ævintýri fyrir börn.
Heildardagskrá í Reykjavík:
Miðvikudagur 23. september
kl. 10:45 - Leikfimi fyrir eldri borgara í Víkingsheimilinu í Víkinni
kl. 10:30 – 11:00 – Gönguferð um miðbæinn frá Samfélagshúsinu Vitatorgi
kl. 14:00 - 15:00 - Harmónikkuball með Vitatorgsbandinu í Samfélagshúsinu Vitatorgi, Lindargötu 59
kl. 17:00 - 19:00 - Skíðagöngufélagið Ullur – Kynning á gönguskíðum á bílastæði Árbæjarsafns
kl. 17:15 – Opnunarviðburður á Kaffi Flóru í Grasagarðinum
kl. 18:00 - Hjólaæfing með Víkingum í Víkingsheimilinu í Víkinni
Fimmtudagur 24. september
kl. 10:00 - 60+ þrek í Þrótti í Laugardal
kl. 10:30 - 11:30 - Heilsuefling 60+ Virkir Víkingar í Virkinu Safamýri
kl. 11:30 - 12:30 - 60+ Ármann í Ármannshúsinu í Laugardal
kl. 13:00 - Bollywood Iceland dansæfing í Samfélagshúsinu Bólstaðarhlíð 43
kl. 13:45 - Fræðsluerindi frá Heyrnahjálp í Samfélagshúsinu Bólstaðarhlíð 43
kl. 16:30 - Gufugusa á Skarfakletti. Skráning á fargufa.is
kl. 17:15 - Hlaupahópur Ármanns fyrir utan Laugardalslaug
kl. 18:30 - 19:30 - Fullorðins frjálsar Ármanns í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal
kl. 19:00 - 21:00 - Fullorðins fimleikar fyrir 18 ára+ í Ármannshúsinu í Laugardal
Föstudagur 25. september
kl. 10:30 - 11:00 - Leikfimi með Sirrý í Samfélagshúsinu Vitatorgi, Lindargötu 59
kl. 15:00 - Gufugusa í Gufunesi. Skráning á fargufa.is
kl. 16:00 - 18:00 - Bangsaganga á Úlfarsfell
kl. 17:00 - Kynning á sjósundi á Ylströndinni í Nauthólsvík
kl. 17:00 og 20:00 - Sundballett með Eilífðinni í Vesturbæjarlaug
kl. 19:00 - Samflot með Unni Valdísi í Árbæjarlaug
kl. 20:00 - Zumba með Max Hagan í Grafarvogslaug
Laugardagur 26. september
kl. 09:00 - Hlaupahópur Ármanns fyrir utan Laugardalslaug
kl. 10:00 - Fjallahjólaferð fjölskyldunnar við Rauðavatn og Austurheiðar
kl. 10:30 - Ganga um hverfið úr Samfélagshúsinu Bólstaðarhlíð 43
kl. 10:30 - 11:30 - Zumba í Samfélagshúsinu Vitatorgi, Lindargötu 59
kl. 11:00 – Heiðmerkurhlaupið. Báðar vegalengdir hefjast frá Elliðavatni.
kl. 12:00 - 14:00 - Dr. Bike, Hjólafélag Reykjavíkur, Rathlaup og Folf í Frístundagarðinum Gufunesi
kl. 14:00 - Glaðari þú og Zumba á Ylströndinni í Nauthólsvík - Frítt inn á viðburð
Sunnudagur 27. september
kl. 10:00 - Samhjól með Víkingum í Víkingsheimilinu í Víkinni
kl. 12:00 - 16:00 - Hobbyhorse, jóga og ratleikur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
Mánudagur 28. september
kl. 10:30 - 11:00 - Leikfimi með Sirrý í Samfélagshúsinu Vitatorgi, Lindargötu 59
kl. 10:30 - 11:30 - Heilsuefling 60+ í Virkinu Safamýri
kl. 10:45 - Leikfimi fyrir eldri borgara í Víkingsheimilinu í Víkinni
kl. 13:00 - 13:40 - Bollywood dansæfing í Hvassaleiti 58-60
kl. 13:30 - Zumba með Tanyu í Samfélagshúsinu Aflagranda
kl. 18:00 - Hjólaæfing með Víkingum í Víkingsheimilinu í Víkinni
Þriðjudagur 29. september
kl. 10:00 - 11:00 - Púttgolf í Samfélagshúsinu Vitatorgi, Lindargötu 59
kl. 10:00 - 60+ Þrek í Þrótti í Laugardal
kl. 10:30 - 11:00 - Þátttakendastýrðar Jafnvægisæfingar í Samfélagshúsinu Bólstaðarhlíð 43
kl. 11:00 - 11:45 - Bollywood Zumba í Borgum
kl. 11:30 - 60+ Ármann í Ármannshúsinu í Laugardal
kl. 13:00 - 13:30 - Leikfimi með Snorra Íþróttafræðingi í Samfélagshúsinu Bólstaðarhlíð 43
kl. 14:00 - 14:45 - Bollywood Zumba í Hraunbæ 105
kl. 17:15 - Hlaupahópur Ármanns fyrir utan Laugardalslaug
kl. 18:30 - 19:30 - Fullorðins Frjálsar Ármanns í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal
kl. 19:00 - 21:00 - Fullorðins fimleikar fyrir 18 ára +í Ármannshúsinu í Laugardal
kl. 20:30 - 21:30 - Yin Jóga með Ylfu í Víkingsheimilinu í Safamýri - Karatesalnum
Miðvikudagur 30. september
kl. 10:30 - 11:00 - Boccia í Samfélagshúsinu Bólstaðarhlíð 43
kl. 10:30 - 11:00 - Gönguferð um miðbæinn frá Samfélagshúsinu Vitatorgi