Menningarstyrkir - stuðningur við fjölbreytt menningarlíf
Markmið styrkveitinga og samstarfssamninga menningarráðs er að styðja öflugt, faglegt og fjölbreytt menningarlíf í Reykjavík í samræmi við gildandi menningarstefnu borgarinnar á hverjum tíma
Á fyrsta fundi nýs menningarráðs var skipaður þverpólitískur rýnihópur til að fara yfir styrkjakerfi Reykjavíkurborgar með það að markmiði að einfalda það, gera það gagnsærra og tengja það betur við menningarstefnu Reykjavíkur.
Grasrótastyrkir verða nú sérstaklega ætlaðir yngri listamönnum og nýliðum í listum og verða að jafnaði á bilinu 200–800 þúsund krónur. Verkefnastyrkir verða á bilinu 800 þúsund til 3 milljónir króna og samstarfssamningar 1,5–6,5 milljónir króna.
Fyrirkomulag smærri styrkja er gert einfaldara og aðgengilegra, sérstaklega fyrir ungt listafólk sem er að stíga sín fyrstu skref.
Menningarráð skipar ráðgefandi faghóp og sem metur styrkjaumsóknir og ráðið tekur svo ákvörðun um úthlutun styrkja og gerð samstarfssamninga sem byggja á mati faghópsins.
Opið er fyrir umsóknir um styrki úr borgarsjóði fyrir árið 2027 og umsóknarfrestur er til 30. september næstkomandi. Umsóknir eru rafrænar í gegnum Mínar síður Reykjavíkurborgar.