Blágrænt málþing Reykjavíkurborgar

Tjörnin

Opið málþing um framgang LIFE Icewater verkefnisins í Reykjavík um bætt vatnsgæði og vistkerfi í Tjörninni og Vatnsmýrinni, flóðavörnum í Kvosinni og innleiðingu blágrænna lausna í Tjarnarsal 23. september kl. 13–15.

Ýmsir aðilar tengdir verkefninu frá Reykjavíkurborg, Veitum, Umhverfis- og orkustofnun  og fleiri upplýsa um stöðu verkefna.

Dagskrá:

  • Ávarp og opnun málþings – Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagssviðs.
  • LIFE Icewater verkefnið í Reykjavík – Anna Rósa Böðvarsdóttir, deildarstjóri á skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg.
  • Hólmagerð í Tjörninni – Þórhildur Þórhallsdóttir, landslagsarkitekt hjá Landmótun.
  • Vatnsmýrin - Staða og næstu skref - Jón Pétur Wilke Gunnarsson, verkefnastjóri vatnsmiðla hjá Veitum.
  • Mæling forgangsefna í Tjörninni – Svava Svanborg Steinarsdóttir, verkefnastjóri vöktunar hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.
  • Myndband: Trekanten vatn í Stokkhólmi – svipaðar áskoranir og í Tjörninni í Reykjavík.
  • Hvers vegna blágrænar ofanvatnslausnir? - Halldóra Hreggviðsdóttir, skipulagsráðgjafi og framkvæmdastjóri ALTA.
  • Myndband - Blágrænar ofanvatnslausnir í Grundarfirði
  • Flóðamat í Kvosinni: Niðurstöður - Sigurður Grétar Sigmarsson, vatnsauðlindaverkfræðingur hjá Verkís.
  • Endurhönnun fráveitu í Þingholtum – Jón Pétur Wilke Gunnarsson, verkefnastjóri vatnsmiðla hjá Veitum
  • LIFE Icewater verkefnið á Íslandi - Sæmundur Sveinsson, verkefnastjóri LIFE Icewater, Umhverfis- og orkustofnun
  • Samantekt og lokaorð - Freyr Eyjólfsson, fundarstjóri verkefnastjóri hjá Sorpu,

Málþingi er í Tjarnarsal Ráðhússins miðvikudaginn 23. september milli kl. 13 og 15. 

Að loknu málþinginu verður boðið upp á fræðslugöngu í kringum Tjörnina fyrir áhugasama.

Öll velkomin