Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 361

Endurskoðunarnefnd

Ár 2026, mánudaginn 7. september var haldinn 361. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Guðrúnartúni 1 og hófst kl. 10:01. Viðstödd voru Einar S. Hálfdánarson, Björn Snær Atlason og Kristín Baldursdóttir. Einnig sat fundinn Ingunn Ólafsdóttir, innri endurskoðandi. 

Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir. 

Þetta gerðist:

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á trúnaðarmerktum drögum að árshlutareikningi Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026, trúnaðarmerktri greinargerð B hluta fyrirtækja, trúnaðarmerktri greinargerð fagsviða og sjóða A hluta og trúnaðarmerktri skýrslu fjármála- og áhættustýringarsviðs með árshlutareikningnum. IER26010002
    Vísað til afgreiðslu borgarráðs.

    Halldóra Káradóttir, Sigurrós Ásta Sigurðardóttir, Jónas Skúlason og Fjóla Þorgerður Hreinsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:

    Endurskoðunarnefnd hefur fengið kynningu á árshlutareikningi Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026. Endurskoðunarnefnd þakkar greinargóða kynningu og telur að árshlutareikningurinn sé tilbúinn til framlagningar í borgarráði.

    -    Kl. 11:11 tekur Sunna Jóhannsdóttir sæti á fundinum.

     

  2. Lagt fram svar Orkuveitunnar dags. 2. september 2026 við fyrirspurn endurskoðunarnefndar á fundi þann 25. ágúst sl. um yfirstandandi styrkjaverkefni hjá Orkuveitunni og dótturfélögum. IER26090001

     

    Fylgigögn

  3. Fram fer umræða um starfsáætlun nýs starfsárs endurskoðunarnefndar og fundartíma nefndarinnar. IER26080002

     

  4. Fram fer umræða um starfsskýrslur endurskoðunarnefndar fyrir síðasta starfsár.  IER26040004
     

Fundi slitið kl. 11:47

Einar S. Hálfdánarson Björn Snær Atlason

Kristín Baldursdóttir Sunna Jóhannsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð enduskoðunarnefndar frá 07.092026