Endurskoðunarnefnd
Ár 2026, mánudaginn 7. september var haldinn 361. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Guðrúnartúni 1 og hófst kl. 10:01. Viðstödd voru Einar S. Hálfdánarson, Björn Snær Atlason og Kristín Baldursdóttir. Einnig sat fundinn Ingunn Ólafsdóttir, innri endurskoðandi.
Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir.
Þetta gerðist:
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á trúnaðarmerktum drögum að árshlutareikningi Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026, trúnaðarmerktri greinargerð B hluta fyrirtækja, trúnaðarmerktri greinargerð fagsviða og sjóða A hluta og trúnaðarmerktri skýrslu fjármála- og áhættustýringarsviðs með árshlutareikningnum. IER26010002
Vísað til afgreiðslu borgarráðs.Halldóra Káradóttir, Sigurrós Ásta Sigurðardóttir, Jónas Skúlason og Fjóla Þorgerður Hreinsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:
Endurskoðunarnefnd hefur fengið kynningu á árshlutareikningi Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026. Endurskoðunarnefnd þakkar greinargóða kynningu og telur að árshlutareikningurinn sé tilbúinn til framlagningar í borgarráði.
- Kl. 11:11 tekur Sunna Jóhannsdóttir sæti á fundinum.
-
Lagt fram svar Orkuveitunnar dags. 2. september 2026 við fyrirspurn endurskoðunarnefndar á fundi þann 25. ágúst sl. um yfirstandandi styrkjaverkefni hjá Orkuveitunni og dótturfélögum. IER26090001
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um starfsáætlun nýs starfsárs endurskoðunarnefndar og fundartíma nefndarinnar. IER26080002
-
Fram fer umræða um starfsskýrslur endurskoðunarnefndar fyrir síðasta starfsár. IER26040004
Fundi slitið kl. 11:47
Einar S. Hálfdánarson Björn Snær Atlason
Kristín Baldursdóttir Sunna Jóhannsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð enduskoðunarnefndar frá 07.092026