Leikskólinn Hulduheimar stækkar - leikskólaplássum fjölgar
Leikskólinn Hulduheimar í Grafarvogi hefur tekið í notkun nýja viðbyggingu og við það skapast 30 ný leikskólapláss.
Leikskólinn Hulduheimar er í Vættaborgum í Grafarvogi og hafa framkvæmdir við viðbygginguna staðið yfir frá því á síðasta ári. Nýja viðbyggingin tengir vel saman við eldra mannvirki leikskólans og er 265m fermetrar að stærð.
Ný deild verður starfrækt í viðbyggingunni og búið er að útbúa fallega og skemmtilega leikskólalóð sem býður upp á fjölbreytta upplifun til leikja fyrir börnin í leikskólanum.
Með tilkomu nýju byggingarinnar skapast 30 ný leikskólapláss. Innritun í þau pláss stendur yfir og foreldrar hvattir til að skoða það að bæta leikskólanum við umsókn sína í Völu.