Borgin undirbýr sólarhringsopnun bílahúsa

Bílahús

Tillaga umhverfis og skipulagsviðs Reykjavíkurborgar um að undirbúa sólarhringsopnun bílahúsa borgarinnar hefur verið samþykkt í umhverfis og skipulagsráði. Markmiðið er að auka öryggi, bæta þjónustu og auðvelda íbúum og gestum að finna bílastæði í miðborginni.

Aukin vöktun og þjónusta

Samhliða opnun allan sólarhringinn verður vöktun bílahúsanna efld. Rafrænt eftirlit verður allan sólarhringinn og hægt verður að bregðast hraðar við ef upp koma atvik eða viðskiptavinir þurfa aðstoð.

Í bílahúsum Reykjavíkurborgar eru nú 164 eftirlitsmyndavélar og símaþjónusta er í boði fyrir notendur. Unnið verður að því að tryggja að vöktun, símsvörun og önnur þjónusta verði aðgengileg allan sólarhringinn.

Betri nýting og rekstur bílahúsa

Sólarhringsopnunin er liður í að bæta þjónustu við fólk sem sækir miðborgina. Með breytingunni geta fleiri nýtt bílahúsin, þar á meðal fólk sem vinnur kvöld og næturvinnu í miðborginni, ferðamenn og íbúar sem hingað til hafa átt erfiðara með að nýta sér bílahúsin vegna lokunar yfir nóttina. 

„Með sólarhringsopnun erum við að stíga mikilvægt skref í átt að betri þjónustu við íbúa og gesti borgarinnar. Fólk á að geta treyst því að bílahúsin séu aðgengileg þegar á þarf að halda og að öryggi og þjónusta séu tryggð allan sólarhringinn. Jafnframt nýtum við betur þá innviði sem þegar eru til staðar og getum í leiðinni aukið nýtingu og bætt rekstur bílahúsanna.“ segir Matthías Bernhöj Daðason, deildarstjóri Bílastæðasjóðs Reykjavíkur.

Þegar dagsetning sólarhringsopnunar liggur fyrir verður hún auglýst sérstaklega.