Gleðilega Menningarnótt 2026

Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, setur Menningarnót á Klapparstíg hjá DJ Margeiri Karítas Guðjónsdóttir
Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, setur Menningarnót á Klapparstíg hjá DJ Margeiri

Menningarnótt var sett með pomp og prakt klukkan 12:30 í dag við MOMENT hjá DJ Margeiri. Þrátt fyrir örlitla rigningu var margt um manninn í miðborginni og fólk klæddi sig eftir veðri.

Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, ræsti Reykjavíkurmaraþonið klukkan 8:15 í morgun með þátttakendum í maraþoni og hálfmaraþoni. Aðrar hlaupaleiðir eru 10 kílómetra hlaup og skemmtiskokk og þrátt fyrir vætu lét enginn það á sig fá heldur voru allir klæddir eftir veðri.

Ánægðir hlaupara í Reykjavíkurmaraþoni í morgun
Ánægðir hlaupara í Reykjavíkurmaraþoni í morgun

Menningarnótt var svo sett með pompi og prakt klukkan 12:30 á Klapparstíg, hjá DJ Margeiri sem að vanda er með MOMENT þar sem dansinn dunar langt fram á kvöld. Dans Brynju Péturs tók nokkur vel valin skref, Ari Gísli Bragason, fornbókasali flutti ljóð og að því lokun kom Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og setti Menningarnótt formlega.

Dans Brynju Péturs sýndi glæsileg dansspor á setningu Mennigarnætur í morgun
Hópur frá Dans Brynju Péturs sýndi glæsileg dansspor á setningu Mennigarnætur í morgun. Ljósmynd: Karítas Guðjónsdóttir.

Skógræktarfélag Reykjavíkur er heiðursgestur Menningarnætur í ár og í Tjarnarsalnum er sannkallaður ævintýraskógur þar sem fræðast má um það mikilvæga starf sem skógræktarfélagið sinnir í Heiðmörk. Á sýningunni má ennfremur sjá ljósmyndasýninguna „Frá rofabörðum til borgarskóga“ þar sem rakin er saga Skógræktarinnar. 

Auður Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur og Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, í ævintýraskógi Skógræktarfélagsins í Tjarnarsalnum. Ljósm. Karítas Guðjónsdóttir
Auður Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur og Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri í ævintýraskóginum í Tjarnarsalnum. Ljósmynd Karítas Guðjónsdóttir

Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, bauð heiðursgestina velkomna í Ráðhús Reykjavíkur, það væri sannur heiður að fá þau og skóginn í hús á Menningarnótt. Skógræktarfélag Reykjavíkur afhenti Ljósmyndasafni Reykjavíkur ljósmyndasafn sitt til varðveislu enda mikilvægt að þessi þáttur í sögu borgarinnar sé varðveittur til framtíðar og aðgengilegur.

Fjölmenni í Tjarnarsal í ævintýraskógi Skógræktar Reykjavíkur sem er heiðursgestur Menningarnætur. Ljósmynd: Karítas Guðjónsdóttir
Fjölmenni á dagskrá Skógræktarfélagsins í Tjarnarsalnum. Ljósmynd Karítas Guðjónsdóttir

Framundan er stútfull dagskrá af skemmtiatriðum, dans, tónlist, söngur, keppni í bekkpressu, Tónaflóð á Arnarhóli og 40 ára afmælistónleikar Bylgjunnar í Hljómskálagarði.

Menningarnótt er fjölskylduhátið og hér er glatt á hjalla í ævintýraskóginum. Ljósmynd: Karítas Guðjónsdóttir
Menningarnótt er fjölskylduhátið og hér er glatt á hjalla í ævintýraskóginum í Tjarnarsalnum í Ráðhúsi Reykjavíkur. Ljósmynd Karítas Guðjónsdóttir.

Menningarnótt er fjölskylduhátíð og henni lýkur klukkan 22.00 í kvöld með flugeldasýningu. Lögð er áhersla á að fjölskyldan komi saman í miðborgina og fari saman heim. 

Góða skemmtun!