Gleðilega Menningarnótt 2026
Menningarnótt var sett með pomp og prakt klukkan 12:30 í dag við MOMENT hjá DJ Margeiri. Þrátt fyrir örlitla rigningu var margt um manninn í miðborginni og fólk klæddi sig eftir veðri.
Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, ræsti Reykjavíkurmaraþonið klukkan 8:15 í morgun með þátttakendum í maraþoni og hálfmaraþoni. Aðrar hlaupaleiðir eru 10 kílómetra hlaup og skemmtiskokk og þrátt fyrir vætu lét enginn það á sig fá heldur voru allir klæddir eftir veðri.
Menningarnótt var svo sett með pompi og prakt klukkan 12:30 á Klapparstíg, hjá DJ Margeiri sem að vanda er með MOMENT þar sem dansinn dunar langt fram á kvöld. Dans Brynju Péturs tók nokkur vel valin skref, Ari Gísli Bragason, fornbókasali flutti ljóð og að því lokun kom Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og setti Menningarnótt formlega.
Skógræktarfélag Reykjavíkur er heiðursgestur Menningarnætur í ár og í Tjarnarsalnum er sannkallaður ævintýraskógur þar sem fræðast má um það mikilvæga starf sem skógræktarfélagið sinnir í Heiðmörk. Á sýningunni má ennfremur sjá ljósmyndasýninguna „Frá rofabörðum til borgarskóga“ þar sem rakin er saga Skógræktarinnar.
Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, bauð heiðursgestina velkomna í Ráðhús Reykjavíkur, það væri sannur heiður að fá þau og skóginn í hús á Menningarnótt. Skógræktarfélag Reykjavíkur afhenti Ljósmyndasafni Reykjavíkur ljósmyndasafn sitt til varðveislu enda mikilvægt að þessi þáttur í sögu borgarinnar sé varðveittur til framtíðar og aðgengilegur.
Framundan er stútfull dagskrá af skemmtiatriðum, dans, tónlist, söngur, keppni í bekkpressu, Tónaflóð á Arnarhóli og 40 ára afmælistónleikar Bylgjunnar í Hljómskálagarði.
Menningarnótt er fjölskylduhátíð og henni lýkur klukkan 22.00 í kvöld með flugeldasýningu. Lögð er áhersla á að fjölskyldan komi saman í miðborgina og fari saman heim.
Góða skemmtun!