Sameinumst undir regnboganum - Gleðigangan
Gleðigangan 2026 verður laugardaginn 8. ágúst. Gangan fer af stað frá Hallgrímskirkju stundvíslega kl. 14:00.
Í gleðigöngunni sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar ásamt fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína og minna á baráttumál sín. Gangan er í senn kröfuganga hinsegin fólks, sem kallar eftir jafnrétti, vitundarvakningu og útrýmingu mismununar, sem og vettvangur til að fagna því sem hefur unnist í baráttunni.
Frá Hallgrímkirkju liggur leiðin niður Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu og Fríkirkjuveg. Gangan endar við gatnamót Fríkirkjuvegar og Skothúsvegar, en atriði halda áfram inn Sóleyjargötu og þaðan inn í Hljómskálagarðinn þar sem útitónleikar taka við.
Sameinumst undir regboganum og tökum þátt í Gleðigöngunni á morgun!