Sameinumst undir regnboganum - Gleðigangan

Frá Gleðigöngunni

Gleðigangan 2026 verður laugardaginn 8. ágúst. Gangan fer af stað frá Hallgrímskirkju stundvíslega kl. 14:00.

Í gleðigöngunni sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar ásamt fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína og minna á baráttumál sín. Gangan er í senn kröfuganga hinsegin fólks, sem kallar eftir jafnrétti, vitundarvakningu og útrýmingu mismununar, sem og vettvangur til að fagna því sem hefur unnist í baráttunni.

Gleðigangan, hápunktur Hinsegin daga fer fram í miðborginni ár hvert, og er Reykjavíkurborg stoltur styrktaraðili Hinsegin daga.
Litríkur vagn í Gleðigöngunni.

Frá Hallgrímkirkju liggur leiðin niður Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu og Fríkirkjuveg. Gangan endar við gatnamót Fríkirkjuvegar og Skothúsvegar, en atriði halda áfram inn Sóleyjargötu og þaðan inn í Hljómskálagarðinn þar sem útitónleikar taka við.

 

Kort yfir götulokanir í miðborginni meðan á Gleðigöngunni stendur.

 

Sameinumst undir regboganum og tökum þátt í Gleðigöngunni á morgun!