Góðir grannar - örugg borg
Íbúum Reykjavíkur ásamt aðilum verslunar og þjónustu er boðið til samráðsfundar til að ræða um öryggi í borginni. Fundurinn fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur þriðjudaginn 28. júlí klukkan 17:00.
Boðið verður upp á fræðsluerindi og rætt verður um ýmis öryggismál, meðal annars nágrannavörslu, þar sem íbúar taka höndum saman til að skapa öruggt og ánægjulegt umhverfi.
Á fundinum geta gestir fengið nágrannavörslulímmiða til þess að setja í glugga.
Dagskrá:
- Hildur Björnsdóttir borgarstjóri opnar fundinn.
- Eyþór Víðisson sérfræðingur í öryggismálum verður með fræðslu.
- Fulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir frá samfélagslögreglunni og stöðunni.
Boðið verður upp á kaffi og spjall að loknum fundi.
Öll velkomin!