Nágrannavarsla
Nágrannavarsla er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og íbúa og gengur út á það að íbúar taka höndum saman í forvarnaskyni.
Nágrannavarsla hefur fyrir löngu sannað sig sem mikilvægur hlekkur í að fækka innbrotum á heimili, í bíla og almennum þjófnaði á eigum fólks. Þar sem nágrannavarsla er virk hefur skemmdarverkum einnig fækkað.
Markmið nágrannavörslu
Meginmarkmið nágrannavörslu er að halda afbrotum frá viðkomandi götu/hverfi auk þess sem það tengir fólk saman og myndar þar með öruggara og ánægjulegra nágrenni.
Límmiðar á leiðinni
Víða í hverfum Reykjavíkur má sjá skilti um nágrannavörslu sem sett voru upp á sínum tíma.
Nú verða útbúnir miðar um nágrannavörslu sem hægt er að líma í glugga við útgöngudyr eða svaladyr.
Límmiðarnir verða tiltækir á völdum afgreiðslustöðum hjá borginni innan skamms.
Góður granni - örugg borg
Í nágrannavörslu felst hlutverk íbúa í því að vera „augu og eyru“ götunnar/hverfisins. Gott er að hafa samráð við nágranna í götunni og ræða um hvernig nágrannavörslu og hvernig henni skuli háttað.
Við viljum skapa samfélag í Reykjavík sem er vingjarnlegt, áreiðanlegt og öflugt. Í nágranna Það er gott að hafa eftirfarandi í huga þegar kemur að nágrannavörslu.
Hvað felst í nágrannavörslu:
- Að hafa auga með grunsamlegum bíla- og mannaferðum við húsin í kringum sig
- Að passa upp á að póstur safnist ekki upp í bréfalúgu
- Setja sorp í ruslatunnur nágrannans þegar farið er í burtu í lengri tíma
- Leggja bíl sínum í innkeyrslu nágrannans
- Þegar snjór er yfir öllu er ráðlagt að gengið sé upp að húsi nágrannans og látið líta út sem einhver umferð sé inn í húsið
Góð ráð
Flest innbrot eiga sér stað að nóttu til, þegar enginn er heima og nágrannar sofandi, eða yfir daginn þegar allir eru í vinnu eða skóla
- Mikilvægt er að útidyr og bakdyr séu alltaf læstar - líka þegar einhver er heima
- Að verðmæti liggi ekki á glámbekk og sjáist vel utan frá
- Dæmi eru um að þjófar hafi læðst inn í anddyri húsa og tekið veski, síma eða bíllykla sem oft eru geymd í anddyri húsa
- Nágranni geymi aukalykla
- Góð útilýsing sem sem tengd er við hreyfiskynjara
Ferðalög
- Engin verðmæti skilin eftir í bifreiðum
- Fá nágranna sinn til að líta eftir húsinu
- Láta viðkomandi vita hvaða einstaklingar eru líklegir til að sjást við húsið og gefa upp lýsingu og jafnvel bílnúmer viðkomandi
- Gefa ekki upp á samfélagsmiðlum að verið sé að fara í ferðalag
Rétt viðbrögð
- Innbrotsþjófur gæti enn verið á vettvangi. Sýndu skynsemi, ekki fara inn í húsið ef þú telur að einhver sé inni í því
- Hringdu strax á lögregluna í 112 og tilkynntu innbrotið. Ef þú kemur heim og sérð að brotist hefur verið inn hjá þér er mikilvægt að hreyfa ekki við neinu fyrr en lögreglan kemur
- Ef ókunnugur bíll er fyrir utan þá getur verið gagnlegt að taka niður bílnúmerið, til dæmis með því að taka mynd af bílnum
- Samfélag þar sem nágrannar sameinast til að skapa öruggari, sterkari og virkari samfélög