Grundarhverfi frá grunni og upp
Reykjavíkurborg efndi til hugmyndaleitar vegna rammaskipulagsgerðar fyrir svæði í Grundarhverfi og nágrenni á Kjalarnesi. Tillaga Studio Bua sem nefnist „Grundarhverfi frá grunni og upp“ var hlutskörpust og verður hún þróuð áfram í samstarfi við Reykjavíkurborg og með íbúum á Kjalarnesi.
Hugmyndaleitin fól í sér mótun á rammaskipulagi þar sem kallað var eftir hugmyndarfræðilegri heildarsýn á hvernig byggðarkjarninn í Grundarhverfi og nágrenni hans getur þróast með uppbyggingu og aukna sjálfbærni í huga um leið og staðinn er vörður um sérstöðu og staðaranda á svæðinu.
Leitað var til þriggja arkitektastofa sem með einum eða öðrum hætti hafa komið að skipulagsvinnu á Kjalarnesi eða vinnu við hverfisskipulag í öðrum hverfum borgarinnar. Eftirtöldum stofum var gefinn kostur á þátttöku: Studio Bua, Studio Steinarsson og Urban arkitektum. Valnefnd var skipuðu fimm starfskröftum á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, með sérfræðiþekkingu í skipulagi, landslagsarkitektúr, arkitektúr og borgarhönnun.
Einstök staðsetning Grundarhverfis
Tillaga Studio Bua sem nefnist „Grundarhverfi frá grunni og upp“ var hlutskörpust og verður hún þróuð áfram í samstarfi við Reykjavíkurborg og með íbúum á Kjalarnesi. Tillagan fyrir Grundarhverfi er byggð á ítarlegri könnun á sögu svæðisins, þörfum íbúanna, staðbundnum athugunum og framtíðarsýn um sjálfbæran vöxt Reykjavíkurborgar. Meginmarkmiðið er að auka íbúðabyggð verulega, samhliða því að efla sérstöðu svæðisins og tryggja að nýbyggingar yfirskyggi ekki núverandi byggð.
Staðsetning Grundarhverfis er einstök innan borgarinnar. Með aukinni þjónustu og bættum innviðum getur það orðið bæði eftirsóttur og sérstakur staður á höfuðborgarsvæðinu, „þorp í borginni“ sem býður upp á það besta úr báðum heimum: nálægð við borgina og útsýni yfir hana en jafnframt friðsæld sveitarinnar.
Áhersla á fjölskylduíbúðir í sérbýli
Í samantekt valnefndar sem valdi tillögu Studio Bua, segir meðal annars: „Sterk heildarsýn og meginhugmynd sem byggir á hugmyndinni um „landsvæðisgarð“. Vel unnin tillaga út frá staðháttum sem byggir á arfleifð svæðisins og fyrri búsetuháttum. Frumlegar og skemmtilegar hugmyndir um nýtingu eldri bygginga og hvernig ný byggð tekur mið af staðaranda hverfisins.“
Í tillögunni er áhersla á fjölskylduíbúðir í sérbýli með sérafnotarými taka mið af núverandi byggð um leið og gætt er að aukinni félagslegri blöndun með íbúðum í lágreistum fjölbýlishúsum. Vel er hugað að birtuskilyrðum á lóðum og íbúðum.
Mikil áhersla er lögð á að vinna með minjar á svæðinu og tengja þær útivistar og leiksvæðum í leik- og fræðsluupplifun. Sjá má sannfærandi hugmyndir um hvernig endurnýta megi eldri mannvirki til að viðhalda sögulegri tengingu og lágmarka kolefnisspor uppbyggingar.
Samráð við íbúa
Eftir samráðsdaga við íbúa í apríl 2025 var óskum þeirra í Grundarhverfi safnað saman um hvað þau setja í forgang fyrir framtíðina og var sú vinna nýtt í þessari tillögu:
- Betri og fjölbreyttari þjónustu
- Fjölbreyttari útivistar og leiksvæði
- Betri almenningssamgöngur
- Ný betri sundlaug
- Möguleikar á fjölbreyttari afþreyingu
- fjölbreyttara húsnæði á viðráðanlegu verði
- Trjáræktun á fleiri stöðum
- Endurvekja starfsemi í samfélagshúsinu Fólksvangi
- Fleiri atvinnutækifæri, sérstaklega fyrir smáfyrirtæki og handverk
Haldinn verður íbúafundur með íbúum á haustmisseri til að kynna og þróa tillöguna áfram.