Endurskoðunarnefnd
Ár 2023, mánudaginn 4. september 2023 var haldinn 281. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn að Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík og hófst kl. 13:01. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Lárus Finnbogason, Einar S Hálfdánarson og Sigrún Guðmundsdóttir. Sunna Jóhannsdóttir boðaði forföll.
Fundarritari var Hallur Símonarson
Þetta gerðist:
Þetta gerðist:
-
Lögð fram trúnaðarmerkt drög að samanteknum árshlutareikningi Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið 1. janúar 2023 - 30. júní 2023 ásamt greinargerð B-hlutafélaga, greinargerð fagsviða með árshlutareikningi og skýrslu fjármála- og áhættustýringarsviðs með árshlutareikningi. Einnig lögð fram drög að umsögn endurskoðunarnefndar til borgarráðs um árshlutareikninginn. IER23050024
Halldóra Káradóttir, Sigurrós Ásta Sigurðardóttir og Erik Tryggvi Striz Bjarnason taka sæti á fundinum undir þessum lið. 17087
Umsögn endurskoðunarnefndar samþykkt og vísað til borgarráðs.
-
Lögð fram starfsskýrsla fagsviðs innri endurskoðunar hjá Innri endurskoðun og ráðgjöf Reykjavíkurborgar fyrir árið 2022 dags. 31. f.m.
Ingunn Ólafsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 17087.
Fram fer umræða um vinnu við starfsskýrslu endurskoðunarnefndar fyrir tímabilið 2022-2023.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 15:35
Lárus Finnbogason Einar S. Hálfdánarson
Sigrún Guðmundsdóttir