Endurskoðunarnefnd
Ár 2023, miðvikudaginn 23. ágúst var haldinn 280. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 13:02. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Lárus Finnbogason, Sunna Jóhannsdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir.
Fundarritari var Hallur Símonarson
Þetta gerðist:
Þetta gerðist:
-
Lögð fram drög að samandregnum árshlutareikningi Ljósleiðarans ehf. fyrir tímabilið 1. janúar 2023 – 30. júní 2023 ásamt könnunarskýrslu ytri endurskoðenda fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2023.
- Kl. 13:10 tekur Einar S Hálfdánarson sæti á fundinum með rafrænum hætti.
Benedikt K Magnússon, Birna Bragadóttir, Bragi Þór Bjarnason, Bryndís María Leifsdóttir, Dagný Jóhannesdóttir, Davíð Arnar Einarsson, Gylfi Magnússon, Halla Björg Haraldsdóttir, Hrafnhildur Fanngeirsdóttir og Theodór S Sigurbergsson taka sæti á fundinum með rafrænum hætti.
Samþykkt að fela formanni endurskoðunarnefndar að ganga frá umsögn til stjórnar Ljósleiðarans ehf. um árshlutareikning félagsins 1. janúar 2023 – 30. júní 2023.
-
Lögð fram drög að samandregnum árshlutareikningi samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur sef. fyrir tímabilið 1. janúar 2023 – 30. júní 2023 ásamt könnunarskýrslu ytri endurskoðenda fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2023.
Arna Vigdís Jónsdóttir, Benedikt K Magnússon, Bryndís María Leifsdóttir, Davíð Arnar Einarsson Gylfi Magnússon, Hrafnhildur Fanngeirsdóttir og Theodór S Sigurbergsson taka sæti á fundinum með rafrænum hætti.
Samþykkt að fela formanni endurskoðunarnefndar að ganga frá umsögn til stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur sef. um árshlutareikning félagsins 1. janúar 2023 – 30. júní 2023.
Fundi slitið kl. 14:38
Lárus Finnbogason Sigrún Guðmundsdóttir
Sunna Jóhannsdóttir Einar S. Hálfdánarson