Listafólk framtíðarinnar fyllir miðborgina af lífi

Frá Vængjaslætti, lokahátíð ungs listafólks. Róbert Reynisson
Ungmenni í hvítum göllum halda á bleikum stórum bolta og ganga niður Bankastrætið. Götulist á vegum Hins hússins.

Götuleikhús og Listhópar Hins Hússins eru skapandi vettvangur þar sem ungt listafólk vinnur að fjölbreyttum og lifandi verkefnum. Í sumar, líkt og fyrri ár, hafa hóparnir staðið fyrir kraftmikilli og lifandi dagskrá í miðborg Reykjavíkur. Föstudagsfiðrildi verða á dagskrá á föstudaginn, ekki missa af!

Reynslan sýnir að í þessum hópum leynast jafnan margar af framtíðarstjörnum íslensks listalífs og því er þetta kjörið tækifæri til að upplifa sköpunarkraft unga fólksins og sjá hugmyndir verða að veruleika. 

Föstudagsfiðrildi í miðborginni – 26. júní klukkan 12:00–14:00

Föstudaginn 26. júní fyllist miðborgin af gjörningum, tónlist og sýningum frá listhópunum.

Viðburðir fara fram á nokkrum stöðum í miðborginni og á hverjum stað er dagskráin endurtekin á tímabilinu, þannig að gestir geta gengið á milli og upplifað fjölbreytta viðburði í þeirri röð sem þeir kjósa.

Dagskrá:

  • Götuleikhús Hins Hússins @ Lækjargata
    Skvísuskrímsli fara um Lækjargötu og bjóða vegfarendum að staldra við og upplifa óvænta fegurð í borgarrýminu. 
  • Dúó Koblía @ Safnahúsið
    Klassísk tónlist eftir Beethoven, Schubert, Chopin og fleiri flutt á fiðlu og píanó. 
  • Alltílagi? @ Mót Skólavörðustígs og Laugavegs
    Sýning á „besta listaverki allra tíma“. 
  • Upplistand módernistans @ Horn Austurstrætis og Pósthússtrætis
    Gjörningur sem rannsakar uppruna í gegnum eina langa setningu í vitundarflæði.  
  • Listanetið @ Borgarbókasafnið Grófinni
    Sýnishorn af verkum sumarsins og lifandi sköpun í samtali við gesti. 
  • Á Rauðum sokkum @ Borgarbókasafnið Grófinni
    Textílverk innblásið af íslenskri kvennabaráttu og samstöðu. 
  • Samtal við píanóið @ Neskirkja
    Klassísk tónlist í lifandi samtali við píanóið. 
  • Styttuvík @ Vatnsberinn, Lækjargata / Bankastræti
    Gjörningur við styttu Vatnsberans í borgarrýminu. 
  • Borgin og blómin @ Gróðurhúsið við Lækjartorg
    Ljósmyndaverk sem skoðar náttúrufegurð innan borgarmarka. 
  • Hljóðheimar í Reykjavík @ Laugavegur
    Gestum er boðið að taka þátt í að skapa sameiginlegt hljóðverk úr borginni sjálfri. 

Vængjasláttur – lokahátíð 9. júlí

Lokahátíð Listhópanna, Vængjasláttur, fer fram í miðborginni 9. júlí klukkan 16:00–18:00. Nánari upplýsingar verða settar á Facebook-síðu Listhópa Hins Hússins þegar nær dregur.

Upplýsingar um hópana og verkefnið í heild.

Ung kona á gangstétt í miðborg með míkrófón, gjörningur á vegum listhópa Hins hússins.
Frá Vængjaslætti, lokahátíð ungs listafólks.