„Vendipunktur í lífinu“ – tvær ungar mæður segja frá reynslu sinni af virkniúrræðinu TINNU

Birna Hólm í pontu en hún sagði reynslusögu sína af virkniúrræðinu TINNU í Gerðubergi. Þar var afmælishátíð TINNU haldin.

Á dögunum var haldið upp á tíu ára afmæli TINNU sem er virkniúrræði ætlað einstæðum foreldrum sem eru utan vinnumarkaðar og hafa glímt við langvarandi félagslegan vanda. Markmiðið er að efla foreldra í hlutverki sínu, auka lífsgæði þeirra og barna þeirra og styðja þau til virkni í samfélaginu. 

Tvær ungar konur, sem báðar eru tveggja barna mæður sem fengu stuðning í gegnum TINNU um nokkurra ára skeið, á meðan þær byggðu sig upp sögðu sögu sína á afmælishátíð TINNU sem haldin var í Gerðubergi. Báðar nýttu þær sér margvíslegan stuðning og unnu mikla vinnu með aðstoð félagsráðgjafanna í TINNU. Í kjölfarið náðu þær að beina lífi sínu inn á góðar brautir. 

Hópur fólks situr í sal og hlustar á erindi á afmælishátíð TINNU sem fór fram í Gerðubergi.
Aðstandendur, velunnarar og annað áhugafólk um TINNU mættu á afmælishátíðina og hlustuðu meðal annars á reynslusögur af úrræðinu. 

Birna Hólm kynntist TINNU árið 2018 í gegnum félagsráðgjafa hjá Reykjavíkurborg. Hún var á þeim tíma utan vinnumarkaðar, eftir að hafa gengið í gegnum þá reynslu að fá hjartaáfall á þrítugsaldri. Þegar hún byrjaði í TINNU var hún tiltölulega nýbúin að eignast yngri son sinn en hann mætti með henni fyrstu mánuðina í TINNU. „Ég mætti á staðinn flesta daga. Það var alltaf eitthvað í gangi og það varð fljótt hluti af daglegu lífi mínu,“ segir hún.

Í TINNU er boðið upp á fjölbreytta dagskrá fjórum sinnum í viku og er áhersla lögð á sjálfsstyrkingu, félagslega færni og þátttöku í samfélaginu. Birna tók þátt í fræðslu og námskeiðum, meðal annars um fjármál, foreldrafærni og myndlist. Eitt námskeið stóð þó upp úr: „Meðvirkninámskeiðið kveikti algjörlega á perunni hjá mér. Þennan sama dag og ég mætti á námskeiðið sleit ég ofbeldissambandinu sem ég var í. Þetta var algjör vendipunktur í lífi mínu.“ 

Í gegnum TINNU fékk hún einnig stuðning til að leita sér frekari hjálpar og fór meðal annars í JANUS endurhæfingu og í geðheilsuteymið, þar sem hún fékk greiningu á geðhvörfum. „Þar lærði að skilja sjálfa mig betur og gat farið að vinna markvisst með líðan mína.“

Samfélag mæðra og jafningjastuðningurinn skipti sköpum

Birna segir stuðning og samveru með öðrum mæðrum í svipaðri stöðu hafa skipt miklu máli. „Þarna skapaðist öruggt rými sem mér finnst mjög mikilvægt. Við vorum allar á svipuðum stað þó aðstæður okkar væru ólíkar, svo við áttum auðvelt með að tengjast.“

Ráðgjafar í TINNU fylgdu Birnu í nokkur ár en viðvera hennar þar minnkaði eftir því sem hún fékk meiri fótfestu í lífinu. Hún fór að vinna sem sjálfboðaliði í Konukoti, kláraði nám í Ráðgjafaskóla Íslands og fór svo út á vinnumarkaðinn. Hún gat allan tímann reitt sig á stuðning ráðgjafanna í TINNU sem hún segir hafa gert gæfumuninn því „dyrnar voru alltaf opnar“. Í dag starfar hún í vettvangs- og ráðgjafarteymi Reykjavíkurborgar (VoR-teyminu), þar sem hún getur nýtt eigin reynslu og menntun í þágu fólks sem glímir við eða hefur glímt við heimilisleysi.

Birna hvetur þau sem fá tækifæri til að taka þátt í TINNU til þess að grípa það. „Það er berskjaldandi að  viðurkenna að þú þurfir aðstoð en það getur verið þess virði. Það er enginn skuldbundinn af því að prófa, svo ég mæli innilega með því að gefa þessu séns.“

Hópur fólks skoðar myndir sem eru á myndlistarsýningu TINNU sem er í Gerðubergi.
Þátttakendur í TINNU tóku þátt í Listahátíð í ár, með sýningunni Draumar og veruleiki í Gerðubergi. Í TINNU er boðið upp á ýmsa virkni og hafa þáttakendur meðal annars unnið saman að listsköpun í hópi undir handleiðslu myndlistarkennarans Fríðu Maríu Harðardóttur.

„Ég fann trú á sjálfa mig í gegnum TINNU“

Hin unga konan, sem kýs að segja sögu sína nafnlaust, var aðeins 19 ára og ólétt að öðru barni sínu þegar félagsráðgjafi hjá Reykjavíkurborg benti henni á TINNU. Hún bjó við erfiðar félagslegar aðstæður og var á að bíða eftir að komast í endurhæfingu vegna sjúkdóms sem hún glímdi við. Hún ákvað að slá til og prófa TINNU á meðan hún biði eftir aðgerð og endurhæfingu, þrátt fyrir að hafa fremur litla trú á því að þátttakan myndi bera árangur. „Ég var rosalega brotin manneskja, áttavillt, hrædd og vissi í raun og veru ekkert hvert ég var að stefna í lífinu. Ég hafði lært að treysta ekki fólki og alls ekki kerfinu. Þetta var stórt skref fyrir mig.“

Það fyrsta sem hún þurfti að læra í TINNU var því að treysta. Hún kom af brotnu heimili og hafði upplifað áföll sem hún hafði ekki unnið úr. Smám saman myndaðist traustið og hún var tilbúin til að taka á móti þeim stuðningi sem í boði var. „Það kom mér á óvart að þarna mætti ég fólki sem vildi mér raunverulega vel. Fólki sem dæmdi mig ekki fyrir fortíð mína eða stöðuna sem ég var í, heldur sá möguleikana í mér þegar ég gat ekki séð þá sjálf. Með tímanum fór ég skilja sjálfa mig átta mig á hvernig ég gæti byggt upp betra líf, fyrir mig og börnin mín.“

Ráðgjafarnir voru baklandið sem vantaði

Konan var þátttakandi í TINNU í fjögur ár. Á meðan á þeim tíma stóð fékk hún meðal annars stuðning við að komast úr ofbeldissambandi og ráðgjöf við forsjárdeilu sem fylgdi. „Ég hafði ekkert bakland sjálf, svo ráðgjafarnir í TINNU voru baklandið mitt. Ég gat alltaf leitað til þeirra.“

Í dag er hún komin á allt annan og betri stað. Hún fór í aðgerðina árið 2023 sem heppnaðist vel, er komin út á vinnumarkaðinn og sinnir starfi sem hún kann vel að meta. „Ég þekki varla manneskjuna sem steig fyrst inn í TINNU. Ég finn fyrir innri ró og trú á sjálfa mig sem ég hafði aldrei upplifað áður. Ég er orðin opnari, öruggari og með skýrari sýn á framtíðina. Ég veit ekki hvar ég væri í dag ef ég hefði ekki fengið tækifæri til að taka þátt í TINNU.“

Á annað hundrað hafa fengið stuðning

TINNA er samstarfsverkefni velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins. Frá upphafi hafa 195 foreldrar nýtt sér úrræðið. Oftar en ekki er um einstæðar mæður að ræða sem, líkt og konurnar, lýsa því sem mikilvægum vendipunkti í lífinu að hafa fengið ráðgjöf og stuðning í gegnum TINNU. Þjónustukannanir sem reglulega eru lagðar fyrir þátttakendur sýna mikla ánægju með úrræðið. Árið 2025 sögðust til að mynda 92% þátttakenda vera mjög eða frekar ánægðir með ráðgjöfina í TINNU.

Súkkulaðikaka með áletrun í tilefni af 10 ára afmæli TINNU.

Tinna er hluti af Virknihúsi hjá Reykjavíkurborg. Ef þú eða einhver sem þú þekkir gæti nýtt sér TINNU er gott fyrsta skref að tala við ráðgjafa hjá einni af miðstöðvum Reykjavíkurborgar. Hægt er að hringja í síma 411 1111 eða panta símtal frá ráðgjafa í gegnum vef Reykjavíkurborgar.