Farþegamiðstöðin Vör opnuð við Viðeyjarsund
Fjölnota farþegamiðstöðin Vör við Viðeyjarsund var formlega opnuð í dag. Með miðstöðinni hefst nýr kafli í ferðaþjónustu á Íslandi en hún mun ekki síður þjóna heimafólki með góðri aðstöðu til viðburðahalds.
Vör er sérhæfð farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip og jafnframt fyrsta nýja farþegamiðstöðin sem rís í Reykjavík í 60 ár, frá opnun BSÍ árið 1965. Hún markar tímamót í móttöku skemmtiferðaskipa á Íslandi og leysir af hólmi tímabundna og takmarkaða aðstöðu á hafnarsvæðinu. Þá tryggir miðstöðin aukið öryggi, betri þjónustu við ferðafólk og styður markmið Faxaflóahafna um fjölgun skiptifarþega; þeirra sem hefja eða ljúka skemmtisiglingu sinni hérlendis, dvelja lengur á landinu og skapa aukin verðmæti fyrir íslenskt efnahagslíf. Vör, sem rúmar allt að tvö þúsund gesti, er þó ekki aðeins hús fyrir ferðafólk því utan annatíma, frá október og út mars ár hvert, verður Vör vettvangur fjölbreyttra viðburða og veisluhalds.
Táknrænt nafn eftir vinsæla nafnasamkeppni
Nafnið Vör er svo sannarlega ekki úr lausu lofti gripið. Um er að ræða rótgróið íslenskt orð sem vísar til lendingar og skjóls við sjó, táknar móttöku og komu ferðalanga og tengir nútímalega byggingu við íslenska menningu og hafnarsögu. Metþátttaka var í nafnasamkeppni fyrir húsið en yfir sex þúsund tillögur bárust frá meira en 3.300 þátttakendum.
Það var hátíðleg stund þegar Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri vígði þessa glæsilegu byggingu í dag ásamt Gunnari Tryggvasyni hafnarstjóra.