16312 Bætt aðgengi við biðstöðvar Strætó 2026

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

Bætt aðgengi við biðstöðvar Strætó 2026, útboð nr. 16312.

Lauslegt yfirlit yfir verkið: 

Verkefnið snýr að bættu aðgengi að 36 biðstöðvum víðsvegar um Reykjavík. Stór hluti verkefnisins felst í að færa ruslastampa eða fjarlægja ruslatunnur, færa skiltastaura strætó og útbúa leiðilínur frá strætóskýlum að götukanti. Á nokkrum biðstöðum er umfang meira þar sem verið er að fjarlægja eldri núverandi skýli fyrir ný eða færslu á núverandi skýlum.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00: þann 28. maí 2026.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 10. júní 2026.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda