Undirritun samkomulags við Gróðrarstöðina Mörk

Samningurinn undirritaður á heimili eigenda Gróðrarstöðvarinnar Markar í dag. Frá vinstri Guðmundur Vernharðsson, Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri og Sigríður Helga Sigurðardóttir.
Frá undirritun samnings við Gróðrarstöðina Mörk

Í dag var undirritað samkomulag Reykjavíkurborgar og Gróðrarstöðvarinnar Markar sem tryggir áframhaldandi starfsemi hennar í Stjörnugróf 18 að hluta. 

Samningurinn var undirritaður af Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra og eigendum Gróðrarstöðvarinnar Markar þeim Guðmundi Vernharðssyni og Sigríði Helgu Sigurðardóttur á heimili þeirra í Stjörnugróf. 
 
Viðstaddir ásamt eigendum og borgarstjóra voru borgarfulltrúar og borgarritari.
Að lokinni undirskrift. Frá vinstri Sigríður Helga Sigurðardóttir, eigandi Gróðrarstöðvarinnar, Líf Magneudóttir borgarfulltrúi, Helga Þórðardóttir, borgarfulltrúi, Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, Alexandra Briem borgarfulltrúi, Guðmundur Vernharðsson, eigandi Gróðrarstöðvarinnar, Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi og Þorsteinn Gunnarsson borgarritari.
Samkomulag Reykjavíkurborgar og Gróðrarstöðvarinnar Markar felur í sér afnotasamning fyrirtækisins til 2050 en um leið þarf Gróðrarstöðin Mörk að skila hluta af lóðinni í tvennu lagi, fyrst í lok þessa árs og svo aftur 2032. 
 
Gróðrarstöðin Mörk heldur um það bil helmingi lóðarinnar eftir þann tíma til 2050 sem tryggir áframhaldandi starfsemi fyrirtækisins.